8.3.2012 | 22:19
Beygjurnar í lífinu.
Undanfarin ár hef ég stundum dottið hér inn á þessa bloggsíðu og tjáð mig um þjóðfélagsmál sem og önnur. Hef staðið sem áhorfandi hjá og fylgst með - stundum skotið inn pælingum og reynt að átta mig á því hvað gengi vel og hvað illa.
Ég hef ekki verið virkur í stjórnmálasamtökum eða flokkum. Verið flokksbundinn vissulega, staðsett mig hægra megin við miðju í "skilgreiningum" stjórnmálanna.
Hins vegar held ég að ég sé í gegnum lífið búinn að koma mér upp ágætri þekkingu á samfélagi fólks, hvað gengur þar vel og hvað illa. Fékk gott uppeldi á heimilum sem gerðu kröfur til þess að sýna umburðarlyndi og auðmýkt fyrir fólki og skoðunum þess. Starfsferillinn hefur verið á vettvangi þar sem allir eru jafnir, en einstakir á sínu sviði og allt þetta býr til sjálfið manns.
Í haust var ég með góðum vinnufélögum mínum í sumarbústað í Húsafelli, sat við kaffiborðið á sunnudegi og hlustaði á Sprengisand á Bylgjunni. Þar datt inn maður sem lýsti lífssýn sinni í framhaldi af því að hann hafði yfirgefið gamla flokkinn sinn og hefði áhuga á að taka þátt í að búa til annars konar pólitik. Þetta var Guðmundur Steingrímsson sem var að tjá sig og ég hreifst af því sem hann talaði um.
Ég las það sem hann var að skrifa og ég ákvað að setja mig í samband við hann og lýsa yfir ánægju minni með málflutning hans. Eftir spjall okkar í milli ákváðum við að hittast sem við gerðum, Helga Lind hundskammaði mig fyrir að mæta á þann fund með mikið hár og óhrjálegur, en sem betur fer kom hann órakaður! Fyrirhugaður 15 mínútna kaffibolli varð miklu lengra stopp, á milli okkar flugu hugrenningar og endalaus skynsemi, á jákvæðum nótum. Ég fór heim á nesið mitt og einhver neisti var þarna kveiktur, ég fann mig langaði virkilega að fylgjast með.
Ég heyrði í fólki sem ég þekkti í borgarkerfinu og hleraði hvernig fólk upplifir Besta flokkinn, því þar var jú hópur sem ætlaði sér að mynda hreifinguna með Guðmundi. Ég var forvitinn að sjá hvernig þeim myndi, "venjulegu ópólitísku fólki", takast að stjórna borgarbákninu sem ég kannast vel við sem starfsmaður þess í 8 ár. Svörin sem ég fékk voru öll á þann veg að þar færi fólk sem vildi vel og væri að færa pólitíkina úr viðjum venja, sem sumir reyndar kölluðu einfaldlega spillingu og sérhagsmuni.
Svör þessa fólks urðu bara til þess að gera mig forvitnari og áhugasamir, frekari samskipti sömuleiðis urðu svo til þess að ég var allt í einu bara kominn í það verk að koma að formlegri stofnun stjórnmálaafls, á virkan hátt. Þáði boð um að taka þátt í stjórn flokksins, og fór enn á ný forvitinn á fund.
Sem var bara ferlega skemmtilegur, fólkið sem ég hafði fæst hitt áður var hvert öðru áhugaverðara og allir með þá hugsjón að vinna að því að pólitík verði leyst sem þjónustuhlutverk í þágu samfélagsins alls og staðráðin í að færa sérhagsmuni og spillingu úr framsæti og afur í skott "þjóðarbílsins".
Næstu skref eru bara í mótun, við ætlum að njóta verksins að mynda stjórnmálaafl sem byggir á þessum kjarnagildum og ég hlakka til að fá að kynnast verkefninu og fólkinu enn betur. Það eru örugglega brekkur framundan og maður þarf að læra margt. Ég t.d. er alveg í skýjunum að heyra það að á bilinu 5 - 6% þjóðarinnar er nú þegar tilbúinn að líta á okkur sem valkost, það áður en við erum í raun farin almennilega af stað - skil ekki alveg þá sem telja það slakan árangur. Svona er maður kannski bláeygur í þessu bara.
Ég hef enga hugsjón fyrir persónulegum frama í stjórnmálum, heldur lít á þetta sem leið til að reyna að hafa áhrif á umræðuna og þar með samfélagið, vonandi jákvæð.
Mér var ungum kennt að lykilatriðin í lífinu væru þau að bera virðingu fyrir öllum verkefnum og gera sitt besta í þeim. Vonandi næ ég að takast á við þetta verkefni út frá þessum meginþáttum.
Pabbi kvaddi mann oft með setningunni - "vertu okkur til sóma" í gamla daga - það ætla ég mér að gera og er ákveðinn í að halda mig við þá grundvallarhugmynd mína að pólitík sé einungis venjulegt verkefni sem þurfi að nálgast á sama hátt og að grafa skurð, kenna dönsku eða stjórna veislu.
Ég ætla alls ekki að falla oní þá gröf að telja það sjálfsagðan hlut fyrir aðra að elta þessar skoðanir minar eða þennan flokk. Það er ekkert nema gott fólk í öllum flokkum og það er hvers og eins að finna út hvaða flokk hann langar til að kjósa.
Ég er bara glaður að hafa hitt minn flokk. Hann heitir Björt Framtíð!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2011 | 23:22
Svona segir maður ekki!
Viðurkenni það bara að ég trúði því ekki þegar mér var sagt frá því að þingmaður hefði látið þessi orð falla um lögregluna.
Eða þá bara leggja það til að björgunarsveitirnar "sýni virðingu" og verji Alþingi. Er það ekki svo að þingmaðurinn er í slíkri sveit - finnst henni það starfi slíkra sveita til framdráttar að vera dregin inn í þá umræðu sem hún gerir með því að nefna þær.
Miðað við undanfarna daga þarf lögreglan ekki að fá svona framkomu í andlitið og það er bara beinlínis ferlegt að þar fari þingmaður af stað með málið.
Svo svíður það mér enn meira að sá þingmaður komi úr mínu kjördæmi, það verður bara að segjast!!!
|
Lýsa furðu á ummælum þingmanns |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2011 | 13:04
Alveg mark takandi á Palla!
Auðvitað var hann í ákveðinni geðshræringu og hefði getað fækkað "helvítis" orðunum töluvert, en þó urðu þau til þess að fólk hlustaði.
Ég hef sjálfur verið að reyna að ræða nákvæmlega þetta í mínum vina- og starfsmannahópi, mér ofbýður hversu fljót við erum að beygja úr málefnalegu ergelsi og sýn á ólík viðhorf yfir í upphrópanir sem hafa þann eina tilgang að niðurlægja og meiða.
Í minni ætt og vinahópi er að finna ótrúlega flóru fólks, með endalaust ólíkar skoðanir. Ekki vildi ég á nokkurn hátt hafa neinn öðruvísi en hann er og við eigum öll að gæta að því hvernig komið er fram við fólk.
Ekki hika við að benda fólki á ef okkur finnst það ganga of langt í orðavali og/eða athöfnum!
Flottur Palli, vonandi átta fleiri sig á því hvað við flest erum orðin hundleið á þeirri framkomu sem þú talaðir um!!!
|
Mikil umræða um orð Páls Óskars |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2011 | 21:37
Stærsti fjölskylduklúbbur á Íslandi kominn á sinn stað!
Árið 1989 var það frændi minn og vinur, Guðmundur heitinn Sveinsson sem kynnti mig fyrir fjölskylduklúbbnum Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. Það ár og þau tvö næstu spilaði ég fótbolta undir fallegu svart / hvítu merkinu og kynntist mörgum mönnum sem í dag eru auðvitað lifandi goðsagnir í Krikanum.
Ég fór aftur norður á Sigló en haustið 1999 var það annar vinur minn sem varð þess valdandi að ég fór að vinna fyrir þetta frábæra félag sem þjálfari. Ég grobba mig enn af því að hafa verið sá sem dró Lauga til FH í janúar 1990 by the way!
Að horfa á Krikann í kvöld var eintóm gæsahúð. Mikið svakalega hefði verið gaman að hafa átt þátt í því að slá þetta áhorfendamet sem slegið var í kvöld! Sjónvarpsmyndavélin fór um stúkuna og þarna sátu FH-ingar af öllum sortum, aldri, kyn og vexti. Gamlar handboltahetjur, þekktir stuðningsmenn og aðrir upprennandi.
Ferlega gaman að sjá "gamla" félaga af fótboltavellinum í Krikanum frá því þá gömlu góðu, en fyrst og síðast svakalega gaman að vinna stórmeistarans Þorgeirs Arnar Jónssonar hafi nú borið árangur.
Það hefur ekki verið auðvelt að vera FH - ingur í handboltanum á síðustu árum þegar kaupóðir Haukar hafa verið að taka dollur og vinna titla. FH þurfti að horfa upp á handboltann sinn í næstefstu deild og fara í gegnum erfitt endursköpunarferli. Lagði allt sitt traust á stórefnilega stráka og ákváðu að taka sér tíma.
Ég fékk þá ánægju að kynnast mörgum þessara stráka á unga aldri sem fótboltamönnum og hef alltaf sagt að þar fór einstakur hópur drengja sem ég hef alltaf verið sannfærður um að hefðu allt sem þarf til að vera góðir íþróttamenn. Auðvitað þekkti ég þá í annarri íþrótt en þeir urðu í kvöld Íslandsmeistarar, en einkenni góðra íþróttamanna hafa þekkst í þeim allt frá þeim degi og ég er alveg hundhandviss að þeir væru margir í meistaraflokki í fótbolta ef þeir hefðu valið þá grein.
En í kvöld stimplaði handboltinn sig aftur hressilega inn hjá FH og það var stórkostlegt að sjá þá gleði sem geislaði frá þeim í svart / hvítu.
Allrar fjölskyldunnar. Ég hef kynnst mörgum bæjarfélögum og íþróttafélögum á Íslandi og fullyrði að Hafnarfjörður er stærsti "sveitabær" landsins og FH er langmesti fjölskylduklúbbur sem við eigum. Allir sem þekkja mig vita að er ekki er til mikið jákvæðara orð en sveitabær!
Og ég tel mig enn vera partur af FH fjölskyldunni, það finn ég alltaf þegar ég kem í Krikann. Vissulega er ég fjarskyldi ættinginn í fjarlægðinni, en hef fundið það ákaflega örugglega í þessari viðureign um handboltatitilinn að FH hjartað það slær á Selhólnum á Sandi.
Innilega til hamingju allir FH-ingar nær og fjær!!!
|
FH Íslandsmeistari |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2011 | 15:03
Gott mál!
Held að þarna sé á ferð góð lausn.
Allir sem þekkja mig vita af því að ég hef ekki verið alfarið glaðastur með vinnubrögð ráðuneytisins á undanförnum misserum og þá ekki síst framgöngu ráðherrans sjálfs. Þó hefur Katrín vaxið í starfi og er smám saman að "finna fæturna" í starfinu.
Svandís er ákveðin kona sem er langt frá því að vera ákvarðanafælin og / eða skaplydda. Bind vonir við það að hún standi sig vel þá mánuði sem hún leysir Katrínu af og litlar uppstokkanir þurfi á starfi innan ráðuneytisins.
Þar eru stór mál í gangi sem þarf að vinna áfram í barnsburðarleyfi Katrínar!
|
Svandís leysir Katrínu af |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2011 | 10:48
Er að koma alvöru verkalýðsslagur?
Á síðustu dögum hefur mér fundist stigmagnast og hríslast út samkennd og baráttuhugur til almennra félagsmanna verkalýðsfélaganna, undir ákveðinni röddu Guðmundar, Vilhjálms á Akranesi og Aðalsteins á Húsavík.
Þessir þrír hafa náð að ýta við þeim í forystusveit verkalýðsins sem að hafa hingað til verið "friðarins menn" og á stundum þolað of mikið af hálfu vinnuveitenda. Að mínu áliti allavega.
Framundan er mikið sálfræðistíð sem mun standa fast að 25.maí.
Allir vita að verkfallsvopnið hefur stundum litlu skilað en nú er svo komið að hagsmunir fjöldans eru í þá átt að ganga það langt núna að í raun hóta atvinnurekendum við núverandi aðstæður að fara langt með það að slá sum fyrirtæki og atvinnugreinar alvarlegu höggi. Sumum fyrirtækjum jafnvel náðarhöggið.
Á undanförnum vikum hafa menn rætt um launahækkanir og skrið í landinu undanfarin ár. Satt að segja kemur sú umræða mörgum á óvart! Ansi mörg okkar hafa búið við sömu launatölu í nokkur misserin og því hefur maður tilhneigingu til að draga það í efa að þetta launaskrið eigi við meirihluta þjóðarinnar.
Sem þá þýðir að minnihluti hafi fengið góðar hækkanir.
Svo heyrir maður af góðri afkomu útflutningsfyrirtækja, en þó hefur aðeins Elkem sýnt starfsfólki þá virðingu að gera við það samning. Örugglega hafa einhverjir borgað bónusa og gefið gjafir, en slíkt á að vera lítilvægt aukaatriði.
Það á að vera frumskilyrði að launafólk vinni samkvæmt gildandi samningum og nú held ég að samkennd verkalýðsins hafi verið endurvakin eftir áralanga fjarveru og því má öllum vera ljóst að almenningur ætlar sér að krefjast bættrar stöðu fjöldans í skugga hruns sem framkallað var af fáum.
Þessi samkennd er fyrst og fremst SA að þakka, þeirra hagsmunagæsla gagnvart sínum félagsmönnum sýndi öllum leiðtogum verkalýðsins hvar áherslur atvinnurekenda liggja og minnti alla rækilega á að til að vinna í umboði launafólks verður að vera tilbúinn til að horfa framhjá persónulegri vináttu og stundum taka slaginn.
Fróðlegt verður að fylgjast með næstu skrefum, sem einstaklingur sem hef tekið þátt í ófáum vinnudeilum undanfarin 20 ár veit ég að nú er verið að hita upp og brýna vopnin. Stundum dugar það vel, stundum ekki vel.
En ég endurtek það að á síðustu dögum hefur lið verkaliðshreyfingarinnar styrkst og getur nú gengið óhrætt inn á leikvanginn til að takast á við lið atvinnurekenda.
Og nú er enginn vináttuleikur á ferð, nú er það alvöru!
|
Hóta allsherjarverkfalli 25. maí |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2011 | 08:56
Grétar að marka sér nafn
Á síðustu árum hefur mikil orka farið í það hjá íslenskum fréttamönnum að pikka upp frammistöðu margra annarra íslenskra atvinnumanna en eðal-Siglfirðingsins Grétars Steinssonar.
Hann er nú hjá sínu þriðja liði, í þriðja landinu og alls staðar hefur hann fest sig í sessi í aðalliðum sinna félaga og miðað við það sem ég hef heyrt öðlast virðingu allra sem hann vinnur með.
Í dag eru örugglega allir búnir að gleyma því að meiðsli fóru nálægt með að eyðileggja ferilinn hans Grétars, sem þá hafði hafnað tilboðum um atvinnumennsku til að læra meira heima á Íslandi sem aðalmaður hjá góðu ÍA-liði.
Hann eyddi sjálfur tíma og fjárhæðum erlendis til að ná sér af þeim meiðslum og fyrsti samningur hans í Sviss var ekki tryggður atvinnusamningur, heldur nokkurs konar hálfatvinnumennskusamningur, þar sem hann þurfti að sanna sig fyrir eigendum Young Boys í Bern.
Það tókst, ferðalagið fór til Alkmaar í Hollandi og þar varð hann strax lykilmaður í góðu AZ liði áður en hann flutti sig til Bolton. Þar sýnist mér á Soccernet hann hafa leikið 105 leiki nú þegar og skora 4 mörk.
Strákur er 29 ára gamall (sem er auðvitað fáránlega mikið því ég kenndi honum dönsku í 8.bekk) sem er ekki mikið fyrir fótboltamann og hann á pottþétt eftir að bæta vel við þennan leikjafjölda erlendis, sem í heildina er kominn yfir 200 leiki.
Hver veit nema að hann klári ferilinn á Elland Road, því sennilega er hans eini mínus að hafa allavega um sinn haldið með þeim ágæta klúbbi.
En allavega er gott að við áttum okkur á því að Grétar er í góðu standi að spila með góðu liði í einni sterkustu deild í heimi. Það snúast um hann fáar fyrirsagnir, sem vissulega hæfir honum en það skiptir máli að nafn hans haldist á lofti, kannski frekar en fréttir af leikmönnum sem eru ekki reglulega byrjunarliðsmenn sinna liða...
|
Grétar Rafn fær góða dóma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2011 | 14:38
Þarft innlegg
Heyrði nýlega af vinnubrögðum Finna í sinni kreppu.
Þar var mynduð samstaða allra hagsmunaaðlia um leiðir út úr kreppunni og menn undirgengust samkomulag um þau atriði sem fólk vildi sameinast um sem nauðsynlegar í þeim aðstæðum sem þar geysuðu.
Um 20% niðurskurður í menntakerfinu og svipað í heilbrigðis- og félagsmálakerfinu voru m.a. unnin af þessum hóp svo að pólitískt hnútukast út af þeim málum var minniháttar.
Hér erum við þremur árum eftir hrun og enn sér maður ekki mikla samstöðu, besta dæmið sennilega þessi svakalega magnaða rannsóknarskýrsla sem allir vilja vera búnir að ýta undir stól.
Þar var kallað á nýja siðfræði og samvinnupólitík í stað eiginhagsmunapots og andstöðupólitíkur.
Við kinkuðum öll kolli en hvað hefur gerst?
Svo er það hárrétt hjá biskupnum að börn og unglingar sjá slæmar fyrirmyndir birtast sér í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, fólk sem hamast á neikvæðan hátt í umræðum um menn og málefni. Slíkt skilar sér of oft inná heimili og vinnustaði og þar heldur slíkt áreiti áfram.
Við erum svo langt frá því að vera komin úr vandanum og ennþá eru sveitarfélögin okkar og ríkið það illa stödd að við þurfum að herða ólarnar.
Við slíkar aðstæður verðum við að standa saman sem samfélag, alveg eins og þegar við verðum fyrir áföllum sem fjölskylda. Annars erum við á ansi rangri leið sem mun ekki skila okkur fram á veginn heldur reka okkur til baka!
|
Verðum að læra að treysta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2011 | 14:31
Jæja
Kom að lokum.
Mogginn ekki fyrstur með fréttirnar en kom samt.
Annars sjá bara að neðan...
|
Vilja að Ásmundur Einar segi af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2011 | 09:46
Aðeins um þingmennsku
Sé að Morgunblaðið ætlar ekki að birta athugasemdir VG-félaga í Grundarfirði og Stykkishólmi varðandi brotthvarf Ásmundar Einars Daðasonar úr ríkisstjórnarhópnum vegna hans skoðunar á ESB. Sem í raun er svolítið sérstakt hjá manni sem m.a. lifir á innflutningi vara frá Evrópu. En nóg um það...
Ég er kjósandi í þessu kjördæmi og hef aldrei séð Ásmund Einar á nokkrum fundi. Hvorki fyrir eða eftir kosningar.
Ég er kannski að vaða reyk, en mitt mat á starfi þingmannsins er að með því að vera kosinn á þing er maður kosinn til að sinna samfélagsþjónustu, ekki síst fyrir þau samfélög sem kusu mann þangað.
Mér er fyrirmunað að skilja þau vinnubrögð að "giftast" einhverjum málaflokkum og tjá sig um allt án þess að reyna einu sinni að heyra hvað sínu samfélagi finnst. Því það hefur þessi þingmaður klárlega ekki gert.
Enn eru þeir þingmenn til sem nenna að koma og hitta fólk til að hlusta á þess skoðanir, og sumir meira að segja eru til í að tala við fólk með algerlega öndverðar skoðanir og alls ekki í sínum stjórnmálaflokkum. Sem er auðvitað algerlega það sem þeir eiga að gera!
Því miður hefur núverandi hópur þingmanna enn þá skoðun að þegar maður er kominn til starfa við Austurvöll þurfi maður ekki að hafa fyrir miklu næstu fjögur árin þegar kemur að því að leita sér fylgis og hlusta eftir skoðunum almennings.
Það er ver og hvort sem menn hætta sjálfir og kveðja (eins og mér finnst alltof fáir þingmenn sem eru komnir út í horn gera) eða að þeir tapa fylgi og verða ekki kosnir aftur (eins og verður með Lilju, Atla, Ásmund og Þráinn) skiptir miklu að þeir sem eftir koma átti sig á sínu hlutverki.
Sem er að sinna þjónustu við samfélagið allt!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 122912
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmsir uppáhaldsvefir
Það sem mér finnst gaman að lesa!
- Fjallabyggð eystri Kíkja á Sigló - takk Steingrímur.
- Besta lið í heimi! Lesið tvisvar til þrisvar á dag!
- Ölli Þór - Ölvis mágur! Tónlistarmaðurinn og fyrirsætan!
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
Fólk
- Ólafur Ragnar brá sér í Kolaportið
- Myndasyrpa: Stjörnur í Cannes
- Páll Óskar heldur Evróvisjónball
- Madonna valdi dóttur Jaggers
- Risastór drottningarmynd á árbakka
- Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
- Fer að dansa ef þetta klikkar
- Eurovision keppnin í SingStar
- Bretar búast til hátíðahalda
- Étinn af krókódílum?
Nýjustu færslurnar
- Geta Alþingismenn slaufað sumarfríi,það held ég ekki,þetta varðar ekki þjóðarhag,bara Forgangraða!!
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi/Þau vori ekki þarna fyrir keppni,bara á eftir/Fyrst við tólkum þátt!!!
- Hluti heilans minnkar við áföll/Nærri viss um að þetta er rétt!!!
- Nýtt bætiefni skilar sparnaði/Gott ef satt er,viðhöfum heyrt þetta áður!!!
- Flugukastkennsla sumarið 2012




ippa
maggatrausta
loi
hugsun
oddur-v
pallijoh
ketilas08
eirag

