Færsluflokkur: Íþróttir
Hjartanlega til hamingju Blönduósingar!
22.8.2007 | 23:44
Enn ein skrautfjöðurin í hatt ótrúlega ötulla Hvatarmanna!!!! Hvöt frá Blönduósi er lið sem hefur síðustu 15 ár haldið uppi gríðaröflugu starfi á meðal Blönduósinga og annarra Húnvetninga. Þessi áfangi þeirra kemur mér bara ekkert á óvart! Vignir og félagar eru íþróttinni til sóma, liðið byggt að mestu upp af heimamönnum sem lifa og hrærast í boltanum, leggja mikið á sig til að æfa og eiga góða umgjörð skilið!!! Á meðan ég spilaði á Sigló í "kjallaradeildinni" var alltaf skemmtilegt að koma á Blönduós. Flottur völlur, alvöru fótboltalið og skemmtileg umgjörð. Var uppáhalds staðurinn á eftir Hofsósi. Því miður hefur orðið erfiðara hjá Neistamönnum, en Hvatarmenn berjast ótrauðir áfram, þrátt fyrir áföll í atvinnulífi bæjarins og alltof marga ósigra í úrslitakeppni 3.deildar á undanförnum árum. Slíkt lið á skilið að fara upp, þrátt fyrir að mótherji þeirra í úrslitunum sé lið á nákvæmlega sama stalli. Baráttujaxlarnir á Seyðisfirði. Þangað er líka alveg svakalega skemmtilegt að fara að spila fótbolta. Gott að annað þeirra kemst upp. Vonandi komast þau bæði. Fótboltinn á Íslandi þarf slík lið úr kjallaranum. Vonandi fá áhorfendur í sætum og brekku góðan leik um helgina!!!! |
100 sæti á íþróttavellinum á Blönduósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)