Skotgrafir pólitíkurinnar...
12.1.2010 | 21:50
Var það ástæða þjóðaratkvæðagreiðslu?
Líf ríkisstjórnarinnar?
Erum við búin að gleyma IceSave málinu og "sameiginlegri ábyrgð allra stjórnmálaflokka" á einni viku?
Enn biðla ég um samstöðustjórnmál í stað átakastjórnmála!
Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tek undir með þér. Það er alls ekki í þjóðarhag að gera þetta mál að spurningu um fall eða stand ríkisstjórnarinnar, þó að stjórnmálamenn munu örugglega reyna það til að halda völdum, og fara þá sjálfsagt eftir skoðanakönnunum. Alltof fyrirsjáanlegt eiginhagsmunaplott.
Hrannar Baldursson, 12.1.2010 kl. 21:59
Ríkistjórnin er sjálf búin að segja þetta. Núna síðast af Gylfa Magnússyni sem sagði það að ef þessi samningur verður felldur þá fer Ríkistjórnin frá, svo hann er ekki að segja annað en það sem Ríkistjórnin er sjálf búin að gefa út.
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.1.2010 kl. 22:16
Ingibjörg: Þá fer kosningabaráttan að snúast um aukaatriði og skotgrafarhernað, áróðursstríð gegn hrunflokkum, áróðursstríð gegn flokkunum sem hlusta ekki á þjóðina, og svo framvegis. Það stefnir í hörmulega kosningabaráttu þar sem verður bara rifist.
Athyglin má alls ekki beinast frá kjarna málsins, sem er þessi samningur. Bjarni Ben lét plata sig ofan í ormagryfju sem ég er hræddur um að hann muni sjá eftir að hafa læðst í.
Hrannar Baldursson, 12.1.2010 kl. 22:33
skarfur
12.1.2010 | 20:47
Samningar ríkisstjórnar Geirs H. Haarde fyrir hönd þjóðarinnar 10. október 2008 og 16. nóvember 2008! Þannig hófst samningaferlið!
Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave
11.10.2008
Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.
Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.
Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.
Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
16.11.2008
Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.
Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.
Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrirgreiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.
Umsamin viðmið
Reykjavík 16. nóvember 2008
Kannski ekki úr vegi, að minna á þessar samninga ríkisstjórnar Geirs. H. Haarde nú þegar ásakanirnar dynja á núverandi ríkisstjórn. Svona hófst í raun þessi samningaruna. Svona var ríkissjóður skuldbundinn í byrjun þessa leiðindamáls! Nú virðist stór hluti þjóðarinnar telja að Jóhanna og Steingrímur J. eigi sök á hvernig komið er, og þau sæta ásökunum um hin villtustu svik við land og þjóð. Munið að Icesave-myllan fór af stóð 2006 með vilja og vitund íslenskra yfirvalda!
Auðun Gíslason, 12.1.2010 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.