Ábyrgð í tali
7.2.2013 | 00:22
Var kennt það ungum að reyna alltaf að taka ábyrgð á því sem ég segði. Það er vissulega töluvert verk þegar ég á í hlut því ég á til að sletta fram töluverðum fjölda orða!
Í dag hlustaði ég á báðar útvarpsstöðvarnar gefa orðið ljóst vegna umkvörtunarefna.
Þar komu ansi margir og vildu ræða um alltof háa skatta og í sömu andránni jafnvel benda á hversu svakalegur niðurskurður hefði orðið í grunnkerfum þjóðfélagsins.
Þetta bara yrði að laga. Strax.
Ég held að enginn í okkar samfélagi muni mótmæla því að mikið hefur gengið á í niðurskurði kerfanna okkar og að vissulega fer ákveðið hlutfall okkar í skatta. Og allt þarf að skoða.
En það skiptir miklu máli núna í vor að ábyrgð verði falin í þeim orðum og samræðu sem mun eiga sér stað í tengslum við það að við erum nú að fara velja okkur nýja fulltrúa inn á löggjafarþingið okkar. Það er ofboðslega auðvelt að finna orðin sem maður telur að fólk vilji hlusta á, en í öllum orðum manns felst ábyrgð á því að maður ætli sér að standa við þau.
Ég held að það skipti nefnilega mjög miklu máli að við áttum okkur öll á þeirri sameiginlegu ábyrgð sem felst í því að búa í samfélagi sem stendur algerlega og fellur með þátttöku þegna þess í samtryggingunni.
Umræðan fram til 27.apríl ætti að horfa til þess að við virkjum okkur öll í þágu þjóðarinnar, förum yfir hvar svigrúm liggur til að spara svo að við getum bætt það í kerfunum sem þarf að laga.
En ekki bíða eftir því að riddarinn á hvíta orð-hestinum komi og bjargi öllum með galdralausnum...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.