Allt gott að frétta!
14.3.2008 | 11:10
Uppeldið gengur bara vel.
Auðvitað fyrst og fremst hangið á móðurinni og borðað en er smám saman að þekkja okkur Birtu held ég.
Sigríður Birta lasin í nótt og þá stálum við Birta rúminu hennar Heklu svona til að auðvelda útfærslu næturinnar. Ýmislegt sem maður þarf að gera þegar tvö börn eru á heimilinu, margt sem breytist þá.
Búið að ákveða að skíra stúlkuna laugardaginn 22.mars í Ingjaldshólskirkju. Verður örugglega góður dagur undir Jökli!
En allavega, þá var aðalatriðið í dag að láta vita að það eru komnar inn nýjar myndir!
Athugasemdir
Spennandi
Það var þessi fína Vorsýning í Varmárskóla í gærkvöldi og það vildi svo skemmtilega til að á seinni helmingi sýningarinnar voru bæði Hekla og Sölvi með atriði með sínum bekkjum.
Hekla var flott að dansa við lag úr "Grease"
Allt svo flottar stelpur sem þið eigið.
Vonum að allt gangi vel..
Stella (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.