Blogg í lok júlí

Hæ.

Mikið stuð og ég of latur að blogga.

Fyrst að nefna er Sandaragleðin 2008.  Við hér breyttum nafni götunnar okkar í Anfield Road og skreytingar og stemming götunnar stillt í samræmi við það, rautt gegnumgangandi og leikmenn götunnar kynntir til sögunnar.  Ekki má svo gleyma stóru ákvörðununum, við keyptum partýtjöld sem reyndar fuku og skemmdust fyrir hátíð, en líka barmmerki sem náðu mikilli athygli.  Á þeim stóð einfaldlega "Ég bý á Anfield Road" og við transportuðum um hátíðina merkt með barmmerkinu!

Hátíðin var eins og allt á Hellissandi, afslappað, þægilegt og skemmtilegt.  Engin óþarfa læti eða vesen, jafnvel þó fyrsta alvöru rok sumarsins hafi dunið á okkur á laugardeginum!  Í stað partýtjaldanna lagði gatan undir sig bílskúr Jóa og Júnu og þar var stuð, mikið borðað og dúettinn Maggi og Diddi duttu í stuðið, Diddi á gítarnum og ég á bongóinu!  Ég labbaði svo aðeins á aðalballið á skemmtuninni, í TROÐfulla Röstina, en labbaði nú reyndar líka fljótlega heim.  Maður svo settlegur....

Eftir fína rólegheitaviku þar sem Öddi og Harpa komu til okkar á miðvikudeginum til að rúnta um þjóðgarðinn stormuðum við svo suður í bústaðinn til tengdó, á Drumboddsstöðum í Biskupstungum.  Þar hefur Ölli verið að stækka bústaðinn verulega og við áttum þar mjög þægilega helgi, þar til að við fórum í borgina á sunnudeginum.

Þar fórum við Stjáni á jarðarför Skagadraums Gauja Þórðar, áður en við fengum Lauga til okkar og við tókum góðan þjálfarafund í Hrísmóum 7 fram eftir aðfaranótt mánudags.  Við versluðum svo aðeins á mánu- og þriðjudag, kíktum á afa og ömmu áður en við svo fórum aftur heim á Hellissand á þriðjudeginum.

Sæla að vera kominn heim auðvitað, en núna þarf ég líka að fara að standa aðeins í vinnustuði, enda stutt fram að fyrsta opinbera vinnudegi okkar stjórnendanna.

En fyrst á auðvitað að njóta heimilisins og þess sem það gefur.  Í bunkum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Jaa, Maggi. Hitti karl föður þinn og frú á Ketilási. Það var gaman. Svo hitti maður auðvitað fullt af fólki sem maður þekkti. Kíktu á Ketilássíðuna á morgun, þá ættu að vera komnar myndir. Þetta heppnaðist voða vel. 230. mannst. það var stuð !

Hulda Margrét Traustadóttir, 28.7.2008 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband