Frábært verður...
25.9.2009 | 15:56
...þegar þessi vegur verður opnaður.
Er harðákveðinn að fara oftar á Strandirnar þegar umferðin fer að hlykkjast um hann.
Fá að nýta sér möguleikann á gistinóttum í Djúpuvík oftar en áður. Ekki margir staðir (sennilega enginn) í heiminum sem slakar manni meira niður úr erli dagsins en Árneshreppurinn ægifagri.
Og auðvitað Strandirnar almennt!
Vegurinn um Arnkötludal lokaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessi vegur verður bylting fyrir Strandamenn og Ísfirðinga þegar hann verður opnaður.
Sigurbrandur Jakobsson, 25.9.2009 kl. 16:20
Fór á Strandirnar í ágúst í fyrra, grillaði í Ingólfsfirði og gisti í Djúpuvík. Mín fyrsta ferð á þetta svæði og ekki varð ég fyrir vonbrigðum. Einstök orka í náttúrunni þarna. Ók reyndar Tröllatunguheiðina - líka í fyrsta skipti - og það var verulega skemmtilegt.
Hlakka til að fara aftur - og þá þessa nýju leið (þótt ég væri líka alveg til í að prófa Stenadalsheiðina).
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 16:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.