Væri í hópnum...
21.12.2009 | 21:32
...ef ég væri í bænum á morgun.
Gerði þau mistök að taka erlent bílalán upp á 1200 þúsund, sem stendur í dag í 2600 þúsundum og ég hef greitt af því í rúm tvö ár.
Þjófnaður í dagsbirtu, en vissulega samþykkti ég að taka þátt í því, bláeygur.
Hlýtur að þurfa að fara að finna einhverja lausn á þessari vitleysu allri, veit að það eru ekki allir í sömu stöðu og ég að geta borgað af ránslánunum á bílana!
Mótmælt vegna bílalána á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hæ, hó. Við hjónin myndum einnig mæta. Okkar lán var bara rúmar 3 milljónir 2006 er bara um 5 núna, enda bara búin að borga í 3 ár! Kveðjur vestur á nes.
Eysteinn Þór Kristinsson, 21.12.2009 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.