Maður guðs og lifandi.....

Dagurinn í dag, 120410.

Það mun taka mann marga daga að vinna sig í gegnum hugsanir eftir þetta sem rétt er komið fram eftir 8 klukkustunda stanslausar fréttir af skýrslunni.

Sem er unnin gríðarlega vel við fyrstu sýn.  Ég ætla fljótlega að kaupa mér bók nr. 7 í þessum flokki, með vitnaleiðslunum.

Og enn á maður eftir að sjá fréttir kvöldsins.

En það er algerlega ljóst að það eru straumhvörf í íslensku samfélagi.  Ekki þarf lengur að velta fyrir sér sekt og sakleysi.  Nú er að vinna í því að koma hinum seku varanlega frá viðskiptum á Íslandi og opinberum störfum.

Síðan að sjá til þess að lýðræðið á Íslandi verði endurvakið og fært úr höndum fjármagnsins.

Meira síðar, nú er ekki hægt að þegja!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svartur dagur frændi !

maggatrausta.blog.is (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband