Gleði á Hlíðarenda!
22.4.2007 | 20:29
Gamla Valshjartað slær ört í dag. Þrátt fyrir hvítbláa ást á ÍR, æskutaugina á Sigló og aðlögun að Víking/Reyni hefur rauði þráðurinn úr Reykjavík aldrei horfið.
Verð alltaf óskaplega glaður þegar Rauðliðarnir á Hlíðarenda lyfta bikar. Auðnaðist sú gæfa að vinna fyrir Valsmenn um tíma og kynntist þar mikið af frábæru fólki. Þar á meðal fékk ég að skrifa um leiki handboltaliðsins á heimasíðu félagsins og var því tíður gestur á handboltaleikjunum.
Mikið óskaplega var maður orðinn svekktur á tapleikjum í undan- og úrslitaviðureignum. Í dag ríkti gleðin, sem birtist mest í taumlausum fagnaðarlátum og ótrúlegri vísu Markúsar Mána í viðtölum!
Óskar Bjarni er það sem ég hef kynnst öðlingsdrengur og á allt gott skilið.
Til hamingju, Valsmenn léttir í lund!!!!
Valsmenn eru Íslandsmeistarar karla 2007 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til hamingju
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2007 kl. 20:36
Til hamingju enn og aftur Valsmenn !!!
Gott að dollan er geimd hjá ykkur núna. Núna er bara að reyna að halda henni þarna.
Alvilda Gunnhildur Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.