Er að koma vor?

Voðalega væri það nú gaman!

Hefðbundin vorverk í gangi í minni vinnu.  Undirbúningur fyrir samræmdu prófin, árshátíðir framundan og mikill þeytingur.

Undanfarna daga hefur margt góðra gesta verið í heimsókn í skólanum okkar, skólastjórar á Vesturlandi fyrst í síðustu viku og umhverfisráðherrann í gær.  Í millitíðinni var ég á bæjarmálafundi J-listans í Snæfellsbæ til að ræða um skólamál.

Afar gaman að gestir og tilhlýðendur lýstu hrifningu á því sem við vorum að gera enda frábært fólk í öllum rúmum hér, hvort sem eru nemendur eða starfsmenn!  Þeir sem vilja kíkja meira eftir því ættu að líta á vefsíðuna okkar, www.gsnb.is - en hún er nú komin í fínt tilraunarennsli.

Af fjölskyldunni er auðvitað allt gott, Sólveig Harpa bara braggast og verður stöðugt mannalegri.  Stóra systir er nú orðin miklu sjóaðri í því að eiga systkin svo að lífið er bara ljúft á Selhólnum.

En vonandi fer nú kuldatrekk og kalsa að ljúka.  Kominn tími á hæga vorvinda með hlýju og vætu sem að gefa af sér græna jörð og blómaangan.

Megi guð vaka yfir störfum ykkar vinir mínir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Loksins byrjað að vora á Akureyri....í dag er fólk léttklætt á götunum og allir eitthvað svo glaðir í fasi og hreyfingum !

Gaman að kíkja á gsnb.is. Bestu kveðjur í bæinn.

Góða helgi  

Hulda Margrét Traustadóttir, 18.4.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband