Var þetta ástæða þess að við vildum lýðræði?
13.5.2008 | 23:59
Til að lasinn maður með 1,8% fylgi (nær örugglega enn minna í dag eftir vandræðalega slaka framgöngu hans í Jakobsmálinu) stjórni einu borginni okkar Íslendinga, og stærsta fyrirtæki landsins?
Það er örugglega einsdæmi í alheiminum!
Ef Gísli og Hanna snúa þessu dæmi ekki við mun þeirra pólitíska framtíð verða ENGIN!!!! Sitja þögul og til baka, leyfa bullinu að ráða í borginni, bara til að vera í meirihluta! Sitja í skjóli pólitískt dáinna manna og munu bráðlega smitast af þeirri veiki!
Hef haft mikla, mjög mikla, trú á þeim báðum en nú er stór efi í mínum kolli.
Svei mér þá, þeim er að takast að fylkja borginni um Dag B. Eggertsson! Það hefði nú fáum tekist miðað við framgöngu hans í síðustu kosningum............
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.