Til hamingju með daginn pabbi!
15.6.2008 | 12:26
Í dag, 15.júní verður hann pabbi minn 55 ára!
Öðlingurinn Örn Ragnarsson telur þetta bara "semí" hátíðlegt og ætlar mér vitanlega ekki að vera með stórpartý í Hafnarfirðinum.
En ég vill óska honum til hamingju með lukkudaginn sinn og um leið þakka honum. Hann pabbi minn hefur kennt mér svo mikið af því mikilvæga í lífinu og hefur verið mín stóra fyrirmynd í leik og starfi.
Að ekki sé á það minnst að á mínum erfiðustu stundum í lífinu hef ég alltaf átt stuðning hans vísan. Skilyrðislausan.
Til hamingju aftur pabbi minn, spes fyrir þig, þakka ég guði fyrir að eiga þig að!
Athugasemdir
Til lukku með kallinn! Velkomin heim.
Vilborg Traustadóttir, 15.6.2008 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.