Óheppilegt glott...

... náðist á myndavélar annarrar fréttastöðvarinnar.

Það var á formanni Framsóknarflokksins þegar hann labbaði úr ræðustól.  Virtist bara hæstánægður með árangur sinn í ræðustól.

Er enn að átta mig á Sigmundi.  Hann heldur stundum að hann sé að keppa í MORFÍS en er stundum ágætur.  Þarna fannst mér ekki ástæða til að tala um forsætisráðherra undir liðnum fundarstjórn forseta.

Ef það hefur tíðkast hingað til að nota þann lið til að komast að með allskonar mál er kominn tími á að hætta þeirri tímaeyðslu takk.  Minna froðusnakk og aðgerðir elskurnar!


mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþolandi bið!

Sveitarfélög landsins eru örugglega langstærsti vinnustaður landsins ef þau yrðu saman tekin sem einn slíkur.

Mér finnst með ólíkindum að tillögur varðandi niðurskurð til þeirra séu ekki enn komnar fram.  Við skulum ekki gleyma því að mest af grunnþjónustu heimilanna er á forræði sveitarfélaga og það mun koma mikið niður á okkur sá niðurskurður sem þeim verður skammtaður.

Ég gagnrýni harðlega þá bið sem er á að skýr mynd fáist, eða þá þann skort á upplýsingum til almennings sem er á ferðinni.  Annað hvort er vandinn svo stór að samfélagið okkar ræður ekki við það og þá þarf að viðurkenna það að landið þarfnast mikillar utanaðkomandi aðstoðar, eða það að þeir sem stjórna ríkisstjórninni eru fastir í gömlu fari og kunna ekki neinar leiðir.

Það eru að verða liðnir 9 mánuðir, meðgangan frá hruninu er enn ekki að skila af sér barni og það veit ekki á gott!!!


mbl.is Rætt við sveitarfélögin eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálp!

Er verulega hugsi eftir að hafa hlustað á Joly í Kastljósi kvöldsins.

Hef allt frá í haust haft miklar áhyggjur af því að landið okkar ráði ekki við þetta mál og ég er núna sannfærður um að svo er.  Kannski breytist það á morgun...

Ég hef ekki alveg haft traust á nýja "sérskipaða saksóknaranum" sem var eini umsækjandinn um stöðuna á sínum tíma og tel miklu stærri jaxla þurfa til að naga sig í gegnum varnarmúra þeirra manna sem nú eru að fara að skerða ráðstöfunartekjurnar á mínu heimili.

Skilanefndir banka og sparisjóða eru að gera sig sekar um tengsl við þá sem sigldu landinu í strand, hagsmunatengsl auðjöfranna teygja sig í þúsundir manna sem er hátt hlutfall af heildarfjölda þjóðarinnar og alls staðar heyrir maður sögur af tilraunum til að koma undan peningum, ef ekki úr landi þá undir koddann.

Eignalausir auðmenn eru nú unnvörpum til, háðir ákvörðunum maka sinna sem allan auðinn hafa fengið að undanförnu en engar skuldirnar.

Ég held að sama hvað það kostar eigi að fá þessa járnfrú til verksins.  Ísland, eða allavega hinn almenni Íslendingur, þarf hjálp.  Reynslulítill sýslumaður og fjárvana embætti er hjóm gagnvart þeim glæpagengjum sem við er að eiga og því þarf að breyta á morgun.  Mér reyndar sýndist Dómsmálaráðherra vera að byrja í kvöld en meira þarf til!

Munum Baugsmálið.  Lögfræðingar þeirra sáu um að kasta rýrð á lög og rykfylltu augu landsmanna, töldu sig holdgervinga litla mannsins sem ríkið væri að níðast á.

Er ég sá eini sem er fúll yfir öllum ákæruatriðunum sem voru felld niður gagnvart þessum mönnum.  Held ekki.

Ég veit allavega að ég er ekki sá eini sem er reiður yfir því að á næstu dögum munu ráðstöfunartekjur míns heimilis minnka töluvert, það er að verða lítil frétt.  Ég er líka ekki sá eini sem er rasandi yfir því að á meðan sitja þeir menn sem eiga sök á því að ég þarf að herða ólina á mér og mínum í glæsihöllum í útlöndum, milli þess sem þeir "krúsa" á Suðurskautslandinu eða senda konurnar í rándýrar verslunarferðir.

Hjálp alþjóðasamfélag, hjálpið okkur að koma lögum yfir mennina sem eru nú að spila á fiðluna í fjarska á meðan landið sem þeir kveiktu í brennur! 


mbl.is Ein mikilvægasta rannsóknin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha?

Gunnar minn.

Ef þú vilt Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi vel, þá stígurðu til hliðar.

Ef þú hugsar bara um þitt pólitíska líf heldurðu áfram þangað til að Framsókn rekur þig útaf.

Don't do a Davíð Oddsson!


mbl.is Leggur til að skipuð verði viðræðunefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Gott að heyra að rjúpnastofninn er að taka við sér á ný.  Vonandi nær hann fyrri hæðum!

Ég segi það alls ekki bara sem skotveiðimaður, heldur líka áhugamaður um fugla.  Reyndar held ég að rjúpan hafi minni áhyggjur af manninum en refnum og minknum og þeir félagar hafi mest að segja um lífslíkur hennar.

Ég veiddi fáar rjúpur í fyrra, undir því magni  sem var til viðmiðunar pr. veiðimann og miklu færri einstaklinga en eitt refapar sá fyrir á síðasta ári.

Enda eiga þeir sem svíkjast undan þeim viðmiðunartölum um leyfilegt veiðimagn að fá nafnbótina "Refur".


mbl.is Rjúpnastofninn stækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfishrun?

Einhvern veginn er það orðið sem kemur mér í hug þessa dagana.

Eina sem kemur frá stjórnvöldum er tal um hvaða byrðar "allir þurfa að taka á sig til að verja velferðarkerfið".  Það sem Jóhanna nefndi í ræðu sinni í dag kemur mér allverulega á óvart miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið undanfarna daga.  Það að lítill hluti heimila sé í vanskilum og staðan sé betri en reiknað var með.

Er það rétt?  Ég dreg það verulega, verulega í efa!

Fréttir um stórfelld svik við atvinnuleysistryggingasjóð eru nú að berast, "pappírsskilnaðir" algengir og eignaskiptasamningar sem hafa það að markmiði að láta annan aðila sambúðar verða gjaldþrota skipta hundruðum!

Hingað til hefur bara komið eitt nýtt.  Hækkaður skattur á áfengi, tóbak og bensín.  Á næstu dögum munu koma upplýsingar um skattahækkanir, sem munu án vafa ekki gera margt en taka meira úr vasa þeirra sem standa best í skilum og hvetja til vinnuleti.  Ja, eða "svartrar" vinnu.

Engum dylst að landið okkar á erfitt og staðan er graf-, graf-, grafalvarleg.  Ræða Jóhönnu í dag fannst mér veikburða tilraun til að láta hlutina líta betur út en þeir eru og ég einfaldlega hristi hausinn yfir þeim aðferðum sem maður er að frétta af.

Gamlar aðferðir, máttlítið klór sem litlu mun skipta er nú í gangi og heimilin í landinu skjálfa.  Jóhanna mín, þau skjálfa.

Ég nefndi einhvern tíma í vetur hér að ég teldi landið okkar á mörkum þess að ráða við ástandið og mér finnst það stöðugt verða líklegra að engin ráð séu í kolli ráðamanna önnur en að pína áfram fólk og fyrirtæki þangað til að þau gefast upp.

Hvers vegna er t.d. ekki farið að ræða lækkun lífeyrisaldurs niður í 65 ár?  Hvers vegna minnist engin á einkahlutafélögin og skattprósentu á þau?

Er ennþá verið að velta fyrir sér þeirri vitleysu að reisa tónlistarhús í höfninni í Reykjavík uppá milljarða?  Á ekkert að bregðast við misnotkun kerfanna sem eiga að sjá til þess að öryrkjar og atvinnulaust fólk eigi möguleika á að lifa af?

Það aðgerðarleysi sem hefur ríkt síðustu vikur og mánuði hefur leitt til kollsteypu Jóhanna, en þú bara hefur ekki tekið eftir henni.  Allir "venjulegir" einstaklingar þessa lands hafa þurft að búa við kollsteypu sinna aðstæðna og dregið úr lífsgæðum sínum og sinna.

Við sem hlustum á þig tala um kollsteypu ef eitthvað annað en skattahækkanir og aukning vörugjalda er nefnt hristum þá hausinn og reiknum ekki með því að þú skiljir hvað er í gangi.

Kerfið er sennilega hrunið Jóhanna, þú verður að hafa kjark til að byggja nýtt.....

 


mbl.is Niðurfelling þýðir kollsteypu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki enda alltaf öll Öskubuskuævintýri vel!

Frú Boyle mun eiga erfitt með að lifa undir því álagi sem á henni verður nú næstu vikur og mánuði.

Það eru oftast ástæður fyrir því að maður "meikar það" eða ekki og kannski er ástæða þess að hún er ekki þekktasta óperusöngkona Breta einmitt sú að andlegt jafnvægi hennar er ekki uppá það besta.

Það verður auðvitað fróðlegt að sjá samstarf hennar og Cowell og hverju það mun skila.

Ég held að það besta sem kæmi fyrir hana Susan væri að hún eignaðist kærasta!

Það þyrfti ekki að vera prins sem gefur glerskó...


mbl.is Susan Boyle á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta skrefið komið

Ekki líst mér nú alveg á þetta allt.

Þetta mun auka útgjöld míns heimilis töluvert, ég þarf að aka verulega mikið vegna vinnu minnar og í kjölfar þess að bensínlíterinn mun nú kosta um 180 krónur er líka verið að skera niður kílómetragjald.

Svei mér þá, er hækkun verðlags rétt skref nú þegar verið er m.a. að herja á aukningu ferðamanna sem eitt af leiðunum út úr vandanum?  

Þetta eru fyrstu opinberu skref hinnar nýju ríkisstjórnar jafnaðarmennskunnar víst.  Hækka skatta á neysluvörur heimilanna.  

Mér finnst þetta skrýtin leið til að standa vörð um heimilin.  Mjög skrýtin.

Einhvern veginn finnst mér jöfnuðurinn vera að hallast í áttina niður og það er jafnslæmt og þegar jöfnðurinn er færður upp.

En ég er að fara borga meira í skatt eftir þessa ákvörðun og það byrjar strax á morgun þegar ég fer með fjölskylduna til Reykjavíkur.  Ætli bensínið í þá ferð, sem er um 400 kílómetrar kosti okkur ekki um 10 þúsund krónur...

Held ég tjaldi bara í Ólafsvík í sumarfríinu þetta árið!

 


mbl.is Áfengi og eldsneyti hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi...

...leiðir þetta til eilítið meiri jákvæðni meðal hins almenna borgara gagnvart skotveiðimönnum.

Þetta er nú eiginlega eina dellan mín sem orð er eitthvað á gerandi þó ég komist alltof sjaldan til veiða og því miður finnst mér mikil neikvæðni í gangi gagnvart þessu sporti.

Sem mér finnst auðvitað ósanngjarnt.  Mín skotvopnanotkun snýst um það eitt að veiða dýr til matar, alveg eins og þeir sem standa með flugustöng, eða jafnvel týna ber!  Auðvitað er vopnið hættulegt en ég tel mig hafa fengið góðar leiðbeiningar hvernig á að umgangast það þannig að það skapi nær enga hættu.

Og auðvitað er það rökrétt að maður þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá skotvopnaleyfi en reyndar verður nú kannski erfitt að sanna reglusemi sína....


mbl.is Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við líka!

Við á Selhól nr. 5 sendum henni líka hamingjuóskir og kveðju, um leið og við þökkum henni fyrir hennar þátt í skemmtun gærkvöldsins!

Frábær árangur hjá henni, var kannski sigurvegari í spennukeppninni í gær, því alltaf var ljóst að norski fiðlusöngvarinn Rybak var að fara að vinna þessa keppni, og kannski ágætt að við þurfum ekki að velta fyrir okkur hvort við gætum haldið keppnina núna þessi árin.

En auðvitað hefði það verið gaman....


mbl.is Forsetinn sendi Jóhönnu Guðrúnu kveðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband