Þá er að finna Ljósvetningagoða!

Búinn að hlusta mikið í dag og hugsa margt. 

En var búinn að fatta það að þrátt fyrir allt mitt blogg og skoðanir var ljóst að ég fengi litlu að ráða og ákvað bara að fylgjast með án þess að blanda mér í umræðuna.  Svo eftir daginn stendur það eftir að nú er ljóst að umræðunni endalausu um ESB og aðildarviðræður er lokið.

Það verður sótt um.  Svo mikið er víst.

Héðan frá tekur við langt ferli sem ég fæ líka litlu ráðið um hvernig verður, en ég fæ þó að kjósa um afurðina á endanum!  Fróðlegast í því verður nú ef að VG vill slíta viðræðum áður en þeim lyki, hvaða umboð hafa þeir til þess?  Að mínu viti ekkert.  Það er búið að taka af skarið og treysta verður þjóðinni til að ráða, um það eru allir sammála sýnist mér.

En ég ætla að vona það að næstu tvö ár fari ekki í stanslausa og stöðuga baráttu "með" og "á móti" ESB.  Mér finnst satt að segja strax í dag vera að leita í þá átt.  Hávær rifrildi og miklar deilur hljóma á netinu og því miður held ég að svipað sé að gerast víða annars staðar.

Inngangan í NATO kallaði á svakaleg átök á sínum tíma sem seint (ef nokkurn tíma) greri yfir og þar á undan voru það siðaskiptin sem enduðu með harmleik.  Litla gleði að sækja í það.

Sú ákvörðun íslensk sem sterkust liggur í sögunni var þegar Þorgeir Ljósvetningagoði var sendur undir felld og þaðan kom hann til að höggva á illdeilur sem klufu þjóðina í tvær fylkingar.  Ákvörðun hans leiddi til friðar, þrátt fyrir að mikill ófriður hefði vofað yfir fram á síðustu stundu.

Nú er að vona það að í þeim umræðum sem á okkur munu dynja næstu tvö árin væri það landinu okkar til mikils happs ef okkur tækist að finna Ljósvetningagoðann í einhverjum einstaklingi hér innanlands og fá hann til að leiða þjóðina.

Ég held satt að segja að enginn stjórnmálaleiðtogi njóti þess trausts, ekki frekar en árið 1000 (u.þ.b.) á Alþingi, að stýra þessu máli næstu misserin.  Í Kastljósi kvöldsins sýndi Þorsteinn Pálsson á sér yfirvegaða hlið, þó ljóst sé að hann vilji ná samningi við ESB telur hann mikilvægt að fara með gát.

Er kannski Þorsteinn að fá uppreisn æru eftir að Davíð henti honum út úr stjórnmálastrætónum forðum?

Ég veit ekki alveg, en ég vona að við Íslendingar hugsum alltaf út í það núna sem endranær að hjá fámennri þjóð skiptir hver einstaklingur miklu máli og rétt hans til skoðana þarf að virða.  Það er lykillinn að okkar velferð að við náum að brosa hvert til annars í gegnum þykkt og þunnt.

Friður er farsælli mín kæru...

Dettur ykkur einhver í hug til að henda undir feld, hann þyrfti ekkert að skríða í hann á Þingvöllum, getur alveg verið á þægilegri stað mín vegna!


mbl.is Samþykkt að senda inn umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju á að trúa?

Seðlabankinn virðist eiga erfitt með að ákveða sig varðandi IceSave sýnist manni.

Þetta álit semsagt segir okkur að við ráðum við þennan pakka og við þurfum "bara" að hækka virðisaukaskatt.  Ekki munar okkur um það....

Ég held reyndar að þetta mál snúist fyrst og fremst um það hvaða hóp þjóða Ísland vill eiga sem vini.  Við þurfum ekki að velkjast í vafa að fyrrum nýlenduþjóðir eins og Bretar, Frakkar, Þjóðverjar, Hollendingar, Spánverjar og Portúgalir munu ekki láta sér detta í hug að sýna örþjóð eins og okkur mikið, ef nokkuð umburðarlyndi.  Við erum eins og meðalstór borg í löndum þeirra og með virðingu fyrir þegnum þessara landa er nýlendustefnan einhvers staðar í bakheila stjórnmálamannanna þeirra enn!

Það voru mér allavega mikil vonbrigði að sjá Norðurlöndin ganga í lið með þeim síðasta haust.  Sú ákvörðun varð svo til þess held ég að Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún ákváðu að samþykkja samning um IceSave, eftir að hafa velt fyrir sér að borga ekki.

Þau fengu það skýlaust í æð að ef ekki yrði gengið frá IceSave á ásættanlegan hátt fyrir stóru leikmennina í ESB yrði Ísland útilokað úr vinaklúbbnum.  Nokkuð sem Steingrímur J. hefur nú rekið sig á líka.

Þess vegna verðum við að átta okkur á því að með því að neita IceSave samningnum erum við um leið að samþykkja að við snúum okkur í aðrar áttir í leit að vinaþjóðum og viðskiptasamböndum.  Rússland hefur verið nefnt, Asía og þá sér í lagi Kína og jafnvel að reyna að komast meira á ameríkumarkað.

Ef það væri er ekki útilokað að EES samningurinn verði í hættu og þarmeð hið frjálsa flæði vinnuafls og tollaívilnanir ekki lengur sjálfgefnir hlutir.

Ég er ekki að þruma hér svartsýnisraus, heldur bara að teikna upp þá kosti sem við höfum.  Við höfum áður snúið okkur frá Bretum og bandamönnum þeirra, gerðum það í þorskastríðunum, mér hefur lengi fundist ómaklega vegið að Rússum miðað við þá samninga sem þeir gerðu við okkur á þeim tímum.  Án þeirra er að mínu mati klárt að við hefðum ekki unnið þær deilur.

Nú er staðan sú sama, við erum í stríði, nú við stórþjóðir í Evrópu út af fjármálum.  Ef við ætlum að viðhalda því stríði þarf að leita nýrra vina og samninga.  Yfirgefa þá markaði sem við höfum verið að vinna á síðustu 20 ár.

Munurinn nú frá þorskastríðunum er afstaða Norðurlandanna.  Þar ætla menn að leiða stóru strákana í Evrópu gegn smáþjóðinni í norðri.  Það er skammarvert.

En málið er í mínum huga, ætlar Ísland að reyna að leiða sömu stráka, eða snúa sér annað.

Ef við ætlum að leiða ESB-þjóðirnar og Noreg þurfum við að taka á okkur þær skuldbindingar sem fylgja IceSave samningnum.

Hvernig sem mun ganga að greiða af þeim....


mbl.is Ríkið ræður við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskriftir

Sá góði maður Helgi Bragason sér þann vanda sem fólk er í, það er alveg ljóst.  Hann er með greinargóð yfirlit í tölvunni sinni og hlýtur að átta sig á að mesta mögulega tap bankans væri að reka fólk í greiðsluþrot.

Kaupþing var ansi glatt í útlánum til ýmissa hluta og þurfa nú að taka á sig skell fyrir það held ég hljóti að vera.  Ekki það að bönkunum er vorkunn í því að þeir standa á götóttum brauðfótum enn í dag, alveg ljóst að langt er í frá að þeir hafi fengið það fjármagn sem gerir það mögulegt að þeir starfi eðlilega.

Þetta er svolítið "no win situation" hjá þeim, þeir eiga ekki peninga til að lána, en ef þeir ekki lána (með því að endurfjármagna lán og afskrifa) munu viðskiptavinir þeirra hætta að geta borgað og sjálfkrafa fella bankann.

Því einhvern veginn virðist mér það vera þannig að á meðan að IceSave málið og umræða um inngöngu í Evrópusambandið er á fullu gerist ekki margt í peningamálum landsins.

Hvort það er eingöngu pólitískur slagur sem menn eiga þá að skammast sín fyrir, eða það að Evrópa ráði hér ríkjum verður að koma í ljós.

Fyrr en seinna samt, því færri og færri geta greitt af lánum sínum og nú heyrir maður af stöðugt fleiri einstaklingum sem eru að panta sér gáma til að raða búslóðinni sinni í og yfirgefa eyjuna okkar.  Sem er grafalvarlegt mál!


mbl.is Ráðþrota gegn úrræðaleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríið loksins að detta inn!

Fimmtudagurinn síðasti var árangursríkur og skilaði sér auðvitað í því að ég gat farið í frí, svona að mestu.

Stormaði norður á Pollamót Þórs og skemmti mér konunglega eins og áður þar, enda lið okkar KS-juniorsdrengja stöðugt að verða betur samæft og skynsamt!  Það besta er auðvitað að það verður stöðugt skemmtilegra utan vallar, afslappaðra og hressara!  Árangurinn á vellinum er enn ekki talinn í titlum en broskeppnin okkar vettvangur!

Þegar mótinu lauk náðum við tveimur dögum með fjölskyldunum á Brekkunni og á Neðri-Dálksstöðum sem var auðvitað jafn skemmtilegt og venjulega.  Við héldum svo heim á mánudaginn og komum seint í gærkvöldi á Selhól 5 þar sem unglingurinn beið okkar.  Held hún hafi bara verið farin að sakna okkar smá!

Veðrið hér núna er dásemd, sit hér við eldhúsgluggann og horfi á andlit jökulsins í stafalogni og hita, vonandi að svo verði áfram, því næstu daga ætlum við að njóta þess að vera öll heima og vera sex manna fjölskylda á Sandi, umvafinn góðum vinum.

Kveðjur af Hellissandi til ykkar allra!


Út af hverju er ekki rætt við Geir og Árna?

Ég viðurkenni fúslega að ég sveiflast eins og dingull varðandi allt sem snýr að þessu peningabrölti sem er einhvern veginn bara stöðugt að versna.

Ég minnist þess þó að ákveðinn maður kom í Sjónvarpið og bað "Guð um að blessa Ísland" og á næstu dögum stóð hann í orrahríð mikilli sem endaði með því að hann taldi einsýnt að við værum í þannig stöðu að við værum upp á náð og miskunn Evrópu, með Norðurlöndin í stóru hlutverki.

Árni sat í skothríðinni miðri og Geir og Ingibjörg hafa pottþétt fengið harðorðustu línurnar og geta mest sagt um hver staðan var þarna og hvað verið er að ræða um að verði á meðan að við körpum um málið hér heima.

Sigurður Líndal talaði um "sigraða þjóð" sem "ætti engan annan kost en að samþykkja samninginn".

Var það kannski akkúrat rétta matið.  Manni sýnist á þessari frétt að það hafi verið algerlega málið, sigruð þjóð sem átti að kreysta með dómstólum en svo var ákveðið að "leyfa" samningaviðræður.

Svo ef maður bætir inní að sennilega erum við jafnfjölmenn og borgin Coventry í Englandi verður að skoða þetta allt í ljósi sögunnar, heimurinn er því miður að birtast okkur eins og nýlendunum forðum.

Það rétta er það sem þeim sem ræður finnst.

Ræða við Geir og Árna.  Var blessunin meint sem viðvörun til þjóðar sem var að tapa stríði, þó það hafi verið bankastríð...


mbl.is Árni átti í vök að verjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ok, fínt... Koma svo!

Nokkrir punktar í þessu samkomulagi sem ber að fagna.

Margir þeirra eru þó ennþá á þann hátt að þeir byrja á "stefnt skal að", en vissulega örlar þarna á nokkrum glætum í myrkrinu og ánægjulegt að sjá að allir aðilar komust að borðinu.

Nú þarf maður að leggjast yfir lestur skjalsins og vona að í sögunni minnumst við þess sem fyrsta alvöru skrefsins í átt að réttlátara samfélagi.

En hratt þarf að vinna aðgerðir vegna heimila!!!


mbl.is Áætlun um afnám hafta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kemur úr pakkanum?

Heyrði kjaftasögu að barátta ASÍ væri að skattar færu ekki yfir 45% á Íslandi.

Slík skattbyrði mun ekki ýta fólki út á vinnumarkaðinn á Íslandi, en mörgum út af honum.  Breið bök bogna nefnilega líka og þurfa jafnvel aðstoð.  Því breið bök eru að borga af lánum og sumum gengistengdum.  Aukin skattbyrði, upp í 45% þýðir einfaldlega það að breiðu bökin mörg munu brotna.

Enn sé ég EKKERT sem gæti þýtt að fleiri gætu borgað af lánum sínum og átt framkvæmdafé.  Mikið óskaplega held ég að ástandið hér verði fljótt slæmt ef næstu vikur, eins og síðustu mánuði, er eingöngu verið að herða á sultarólum.

Ábyrgðarmenn hrunsins sitja svo í Sviss og Bretlandi og hafa það bara fínt.  Treysti því að þjóðin gleymi þeim ekki, þó þeir reyni að kaupa sér velvild einhvern tíma síðar.

Enn segi ég og aftur.  Ég er ekki viss um að þessi fámenna þjóð ráði við þennan vanda.  Ég held við þurfum hjálp frá vinum, ef þeir einhversstaðar finnast!


mbl.is Opinberir starfsmenn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að loknum samræmdum prófum

Samræmd próf í 10.bekk grunnskóla á Íslandi voru eins og allir vita lögð niður á síðasta skólaári.

Það kom í kjölfar nýrra laga um grunnskóla sem staðfest voru í júní 2008, en því miður lentu reglugerðir þeirra laga í bankahruninu og enn í dag er ekki hægt að segja að endanleg útfærsla alls sem á að fylgja sé komin til framkvæmda.

Þar á meðal var lítil stýring á flutningi nemenda úr grunnskólum til framhaldsskóla.

Sem varð auðvitað til þess að loksins fékk hver og einn grunnskóli að ráða sinni útskrift og laga hana að þeirri vinnu sem að unnin hefur verið af nemendum þau tíu ár sem þau stunda skólann sinn.  Ekki bara út frá þriggja klukkutíma punktmælingu einn maídag!

Ég er algerlega sannfærður um að þegar tímar líða verður þessa áfanga minnst sem eins þess besta sem náðst hefur í skólamálum.  Ég veit ekki til þess að framhaldsskólarnir þurfi að þola pressu frá samræmdum prófum og hafa þess vegna náð að þróa ólíkar leiðir til að koma til móts við ólíka einstaklinga.  Nokkuð sem nú mun takast með tímanum í grunnskólunum, enn frekar en nú er.

Það að halda það að nokkur grunnskóli falsi vinnueinkunnir nemenda sinna er svo hróplegt bull að mér finnst svakalegt að hægt sé að setja fram slíka fullyrðingu nafnlaust á www.mbl.is!!!

Það að skóli meti nemanda til einkunarinnar 9,0 til dæmis segir framhaldsskóla meira um vinnulag þess nemanda en talan 9,0 á samræmdu prófi gaf til kynna.  Prófseinkunnin er bara mæling á hæfileikum, en sýnir ekki vinnumóral eða metnað nemandans.

Það held ég að við munum sjá þegar til lengri tíma er litið, framhaldsskólarnir munu uppgötva það að tölurnar úr grunnskólanum eru blanda hæfileika og vinnuframlags, sem mun leiða til sanngjarnari niðurröðunar í framhaldsskóla, bæði hvaða skóla og á hvaða brautir.

Okkar reynsla á Snæfellsnesi var góð í vor, við vorum í góðum samskiptum við framhaldsskólann hér og settum fram okkar námsmat á skýran og aðgengilegan hátt.  FSN áttaði sig á okkar kröfum, við vissum þeirra óskir um upplýsingar og ég handviss um að það skilar betri árangri en þegar samræmdu prófin dæmdu allt og alla, einstaklingana og skólana.

Svo er Menntaskólinn við Sund hörkufínn skóli.  Eins og allir framhaldsskólar á Íslandi held ég.  Man ekki eftir því að heyra háskólana hér tala um annað...


mbl.is Foreldrar bálreiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott skref í rétta átt!

Öll lítil skref skipta máli og frábært að sjá Skógræktarfélag Íslands ráðast í svona verkefni sem er auðvitað líka þvílík landprýði.

Ánægjulegt í niðurskurðarfréttunum að sjá svona verkefni fara í gang!


mbl.is Þúsund ný störf í skógrækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja

Heyrði nýlega að Vegagerðin væri eina fyrirtækið á Íslandi utan álvera og sjávarútvegs sem stefndi að einhverjum framkvæmdum þetta árið.

Það verður semsagt ekki.

Skattahækkanir í drep og stopp í framkvæmdum.  Er þetta leiðin út úr vandanum?

Að mínu mati er ALLTOF langt gengið á báðum sviðum og klárt að hjólastell allra framkvæmda og atvinnulífs eru helfrosin.  Er svakalega skeptískur á þessar gömlu leiðir sem Steingrímur og Jóhanna eru að kokka upp og held að hrikaleg staða bíði haustsins nema að einhvers staðar birtist óvænt ljós.

 


mbl.is Hætt við öll útboð í vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband