Verulega flott úrslit!
12.5.2009 | 22:12
Portúgal og Ísland = já.
Svíþjóð og Finnland = já
Hvíta Rússland og Belgía = nei.
Æ hvað það er nú skemmtilegt að maður geti undirbúið alvöru Eurovisionpartý á laugardaginn, við Birta erum strax farin að plana hvað verður í því, hún vill fá grillaðan hamborgara, svo nammi og snakk.
Ég er sáttur með það!
Flottur flutningur hjá Jóhönnu í kvöld og algerlega sanngjarnt held ég!
![]() |
Ísland komið áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tröllkarlinn Gordon!
9.5.2009 | 09:49
Ja svei mér þá.
Einhvern veginn hélt maður að skoska blíðlyndið myndi verða kostur fyrir breskan forsætisráðherra, maðurinn virtist líka ágætlega klár, en vantaði sjarmann til að heilla fólk.
Með atvikum gærdagsins er fullkomlega ljóst að Bretar eru í vörn útaf ummælum hans í breska þinginu sem voru í besta falli klaufaleg, í versta enn ein árásin á liggjandi mann.
Auðvitað hefði maður viljað sjá harðorðara og ákveðnara orðalag í yfirlýsingu breska forsætisráðuneytisins en það er samt alveg ljóst að Bretarnir draga verulega í land og ég trúi ekki öðru heldur en vel verði sótt af Gordon Brown á hans heimavelli.
Því þar er allt á fallandi fæti og hann ætti að hætta að reyna að breiða yfir það með árásum á Ísland.
![]() |
Ánægður með svör |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sérstakur einstaklingur!
5.5.2009 | 18:16
Maður veit satt að segja ekki hvað hægt er að gera úr þessum ágæta manni.
Skilst að hann hafi fengið skýr skilaboð frá stjóranum að fara varlega í tæklingarnar þennan daginn og afleiðingarnar voru ekki í samræmi við þær væntingar.
Sé ekki hvaða lið mun bjarga honum, en þó eru til snillingar í stjórastétt sem virðast þurfa svona leikmenn í kringum sig.
Verður hann ekki bara í Blackburn-treyjunni með Sam Allardyce næsta haust?
![]() |
Newcastle setur Barton í bann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er ekki kominn tími á að breyta keppninni?
29.4.2009 | 22:56
Taka út útivallarmarkið sem einhverja breytu?
Tvær ömurlegar viðureignir, sú skárri þó í kvöld. Súrrealískt að sjá Chelsea tefja og brjóta í 90 mínútur í gær og sjá Arsenal sætta sig við tap, af því það var ekki stórt.
Allir þjálfarar ánægðir nema Barcaþjálfarinn, sem vill skemmta fólki.
Mér finnst Meistaradeildin vera orðin samfellt leiðinlegasta keppni í heimi, með svona 5 - 7 skemmtilegum leikjum á ári, tugum leiðinlegra og bara 6 lið í Evrópu sem geta unnið, þ.e. Liverpool, United, Arsenal, Chelsea, Barca og AC Mílanó.
Leiðindi...
![]() |
Ferguson sáttur við nauman sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Dagur 1
27.4.2009 | 17:39
af stjórnarmyndunarviðræðum.
Held að það sé alveg ljóst að þessir flokkar munu ná saman og farið verður í Evrópuumræðu einhvers konar.
Í vetur bloggaði ég töluvert um mikilvægi þess að finna okkur Ljósvetningagoða, þ.e. einstakling sem að getur sætt tvær nokkurn veginn jafnstórar fylkingar á þann hátt að áfram standi ein þjóð í landinu. Um 52% kusu þessa flokka tvo og ég tel ljóst að til að leiða málið til lykta á farsælan hátt þurfi að kalla til fulltrúa fleiri flokka og jafnvel annara hópa í samfélaginu.
Mín skoðun er einföld. Finna leið til að leysa krónuna af hólmi. Það er að mínu mati forgangsmál, því á meðan að gjaldmiðillinn okkar er verðlaus er hvati til framleiðslu og virðisauka ekki mikill.
Til að leysa þann vanda þarf örugglega að fara nýjar og óhefðbundnar leiðir, og það er kominn tími til að skoða aðrar lausnir en hafa verið reyndar síðustu ár. Í dag kostar ein evra 170 krónur sem er fáránlega mikið verð. Vaxtahækkanir, lækkanir, gjaldeyrishöft, flot og festa. Allt verið reynt en ekkert lagast.
Þar liggur vandinn og allir stjórnmálaflokkar þurfa að svara hvað á að gera. Hætta að tala um hvað á ekki að gera og væla yfir umræðu og spurningum.
![]() |
Evrópumálið sett í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Auðvitað eru menn að taka á því í Árneshrepp!
25.4.2009 | 11:27
Gott að heyra að Árneshreppsbúar ætla að taka virkan þátt í lýðræðinu í dag, þó vissulega töluvert meira þurfi að hafa fyrir atkvæðasöfnun þar en á mörgum öðrum stöðum.
Það er auðvitað dálítill sjarmur yfir því að formaður kjörstjórnar moki hreppinn svo fólk komist á kjörstað. Sé þá í Reykjavík ekki alveg demba sér í það svo glatt!
En notum lýðræðislegan rétt okkar í dag krakkar mínir. Kjósum.
![]() |
Sá fyrsti mættur í Árneshreppi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt sumar öll!
23.4.2009 | 14:24
Búið að vera töluvert á gangi á heimilinu og í vinnu svo að lítið dottið úr blogglyklaborðinu.
Vonandi er það nú að lagast eitthvað, en mig langar allavega að byrja á að óska öllum bloggvinum mínum hér gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.
Hlakka til að halda áfram að láta gamminn geysa um menn og málefni í hlýju, björtu og lygnu sumri frá Hellissandi!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Opna bókhald allra flokka - strax!
8.4.2009 | 23:42
Er orðlaus yfir þessari spillingu sem þarna viðgengst.
Er sannfærður að Geir H. Haarde er eini forsætisráðherrann í lýðræðisríki sem bregður til svona ráða og pólitísk skömm hans er alger. Hún er alger, Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að þurrka hann út úr sögubókum sínum, þ.e. ef við eigum að trúa því að þetta hafi allt verið hans gjörð og að hans frumkvæði.
En takk fyrir, nú opna Samfylking og Framsókn upp sína reikninga. Ef Sjálfstæðisflokkurinn væri íþróttalið væri það nú að bíða eftir brottvísun úr keppni, en sennilegra er að fleiri flokkar færu með í þann skammarkrók og að Bjarni fái að "klára þetta dæmi" með Þorgerði Katrínu. En það þarf að vera ljóst hvað hún vissi mikið.
Nú þarf að draga upp þá aðila hjá Straumi og Landsbankanum sem afhentu féð og fá söguna.
En aðalmálið er að við fáum að vita hvort að gerspilltir glæpamenn í fyrirtækjum hafi keypt sér frið hjá fleiri flokkum!!!
![]() |
Skilað til lögaðila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bíllinn minn svaf í Grundarfirði
1.4.2009 | 13:51
Af því ég veit að einhverjir hafa áhuga á sögunni um litla bílinn minn.
Keyrði hann í Grundarfjörð í gær og gaf mig fram við verkstæðið sem á að geyma hann. Þeim bar skylda að taka lykilinn af mér, skrúfa númerin af og geyma samkvæmt ákveðnum prótókolli.
Svo ætti ég að koma á fimmtudag, sækja númerin á skoðunarstöðina, labba til þeirra (ca. 75 metrar á milli stöðvarinnar og verkstæðisins) og fara með bílinn í skoðun.
Þar sem að okkur fannst þetta jafn kjánalegt var nú ákveðið að konan fengi að keyra númerslaust þessa 75 metra og skoðunarmaðurinn mætti setja númerin á!
Í framhaldi af þessari sögu minni hef ég fengið nokkuð skemmtileg viðbrögð. Veit t.d. að í Reykjavík hefur nú síðustu daga eingöngu verið skoðaðir bílar með númer sem enda á 0 og 1. Svo fékk ég að vita að langar biðraðir voru í allar skoðunarstöðvar í Reykjavík með númer til að skila. Starfsfólkið lenti auðvitað í miklum rökræðum og óþægindin töluverð.
Fyndnast finnst mér svo í dag að frá 1.apríl getur fólk nálgast það númer sem það skilaði inn, fengið það afhent með vikufrest í skoðun! Þannig að væntanlega var nóg að gera aftur í morgun, því ég hef trú á því að það séu ekki allir jafn tilbúnir og við að geta geymt bílinn bara!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýir skattar!
30.3.2009 | 16:35
Sæl öll.
Ekki veit ég hvort þið hafið fengið inn um lúguna til ykkar sl. föstudag upplýsingar um vanrækslugjald vegna skoðunar ökutækja.
Ég fékk svoleiðis blað sem reyndar segir mér af því að ég þurfi að greiða 15 þúsund krónur nema að ég komi með litla bílinn minn (Hyundai Getz) í skoðun í dag eða á morgun.
Það væri svosem allt í góðu nema að ég bý á Hellissandi og næsti skoðunarstaður ökutækis er í Grundarfirði sem er um 40 km. frá heimili mínu.
Sem væri svosem allt í góðu nema að í Grundarfirði er skoðað 2 fimmtudaga í mánuði. Næst er skoðað á fimmtudaginn, 2.apríl og ég var búinn að panta mér skoðun þá.
Svo að ég ákvað að hringja í Frumherja sem sendi mér miðann. Þar svaraði mér dónalegur starfsmaður sem að benti mér á það að það væri skoðunarstöð í Búðardal. Illfært þangað í dag, í 120 km. fjarlægð. Hún gæti ekki að því gert að þú búir þarna, best væri fyrir mig að vera mættur í Borgarnes fyrir kl. 8 í fyrramálið og reyna að troða mér inn á milli hjá þeim. Í Borgarnes frá Hellissandi eru 128 km. og byrjað er að moka fjallvegina uppúr kl. 7. Svo gæti ég auðvitað bara keyrt alla leið suður og klárað málið. 204 km. aðra leiðina. Annars yrði ég bara rukkaður um 15 þúsund kall, annað væri ekki í stöðunni!
Ég ákvað þá að tala við Aðalskoðun, sem er með skoðunina í Grundarfirði. Allt annað viðmót var í gangi, en í raun sömu svör. Ekkert hægt að taka tillit til þess að skoðunarstöðin mín hefði verið opin fimm daga frá áramótum, sama regla gildir fyrir þá sem búa við hliðina á skoðunarstöð sem er opin allt árið og svo okkar sem fáum skoðunarmenn tvisvar í mánuði. Mér skilst að í sumum ennþá minni stöðum sé skoðað einu sinni í mánuði. Þeir voru þó liðlegir og bentu mér á það að ég gæti skilað inn númerunum mínum fyrir mánaðamót og þannig losnað við gjaldið, 15 þúsund krónurnar, en þá borgað umsýslugjöld í staðinn. Um 1200 krónur hjá þeim held ég.
Ég hafði samband við Umferðarstofu og kvartaði. Var þá bent á að tala við sýslumanninn í Bolungarvík sem gæti hugsanlega samið við mig um aðra lausn. Ég minni á að ég á tíma í skoðun 2.apríl. Staðfest hjá Aðalskoðun í Grundarfirði. Sýslumannsembættið fyrir vestan sagði mér þá að til að fella niður gjaldið yrði ég að búa í 80 km. fjarlægð frá skoðunarstað, óháð því hvenær hann er opinn. Þannig að ekki gat ég það.
Hringdi aftur í Umferðarstofu því sýslumaðurinn benti mér á að mögulegt væri að fella gjaldið niður að hluta a.m.k. ef ég væri snöggur að stökkva í skoðun. Þar talaði ég við yfirmann sem skildi málstað minn alveg, staðfesti það að mögulegt væri að fella hálft gjald niður ef hratt yrði brugðist við, en ekki væri mögulegt að fella gjaldið niður, þó ég væri með staðfestan skoðunartíma. Og það á sjötta, já sjötta skoðunardegi í nágrenni heimilis míns frá áramótum.
Hringdi þá aftur í Aðalskoðun, sem ég vill hrósa fyrir þjónustulund, sem staðfesti það við mig að þeir myndu aðeins rukka hálft gjald, 7500 krónur ef að menn færðu bíla sína til skoðunar innan við mánuð frá sektardegi, og við ákváðum að lokum í sameiningu hvað best væri að gera.
Ég mun því á morgun keyra inn í Grundarfjörð, skilja þar bílinn minn eftir við skoðunarstöð þeirra, skrúfa númerin af og láta geyma í um 30 klukkustundir, þangað til ég fæ skoðun. Fyrir þetta þarf ég að greiða geymslugjald, vissulega ekki 15 þúsund krónur, en krónur samt.
Svo þarf ég að redda mér fari í Grundarfjörð á fimmtudaginn og fara með bílinn minn í skoðun, láta skrúfa númerin á og vonandi ekki borga meira. Held að það sé klárt. Þetta þýðir vissulega það að ég þarf að fá endurreiknun á bifreiðagjöld og tryggingar fyrir þann tíma sem ég skila númerunum inn, lækkar kostnaðinn aðeins, en þetta skapar auðvitað óþægindi á mínu heimili.
Ekki það að ég ákvað að fara ekki til Reykjavíkur á morgun því að það er mikil hálka og leiðinleg veðurspá. Þetta er minna vesen.
En ég er alveg sannfærður um það að einhverjir fleiri en ég hef hrokkið við, og örugglega einhverjir sem eru í svipuðum sporum varðandi þjónustu. Mér finnst alveg fáránlegt að ekkert tillit sé tekið til okkar sem búum við svo lágt þjónustustig, ég er ekki að biðja um að við getum látið bílana okkar drabbast niður, en ég tel alveg einsýnt að svona reglugerð hlýtur að kalla á verulega aukna þjónustu til landsmanna allra!
Því að við getum að því gert að búa hérna!
Gerði stutta könnun og get t.d. sagt ykkur að allir tímar í Borgarnesi í dag og á morgun eru fullir, og að þið sem búið í nágrenni stöðvanna getið búist við því að langar, langar biðraðir verði við skoðanastöðvar á morgun. Á meðan að minn bíll sefur einn í Grundarfirði!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)