Enn af ökuníðingum!

Er ekki kominn tími á að fangelsa almennilega menn sem haga sér svona.  Örugglega sjúkur einstaklingur undir áhrifum efna eða áfengis.  Því miður er það engin afsökun.  Maður er hættur að kippa sér upp við slíkar fregnir, koma orðið á viku til tveggja vikna fresti.

Maður óttast það að einungis tímaspursmál sé þangað til að stórslys verður við slíkan akstur.  Kannski þarf lögreglan að fá rýmri heimildir til að stöðva slíka ökumenn.  Miðað við þessa lýsingu í fréttinni fékk hann að fara allt of langt þar til hann var stöðvaður.

Mér finnst umhugsunarverð þróun í gangi hér á landi.  Manni finnst stöðugt meiri hætta vera búin hinum almenna borgara, rán að hábjörtum degi, stórhættulegur glannaakstur.  Klámhringur með ársþing!

Þurfum við ekki að fara að skoða málin aðeins????


mbl.is Ökumaður í annarlegu ástandi skapaði stórhættu á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sko, hann hefur bara gleymt að loka öðru auganu, en þannig getur maður auðveldlega keyrt undir áhrifum án þess að krassa á hitt og þetta.    Annars verð ég að segja að ég get ekki hætt að stunda hina íslensku þjóðaríþrótt, sem er að svíkja undan skatti, og er ekkert annað en þjófnaður, og er meirihluti þjóðarinnar þjófsnautur minn í þeim verknaði.  Ég held að ástæðan fyrir hinni áþreifanlegu glæpatíðni eigi sér uppruna í enn áþreifanlegri njósna og upphrópunarstarfsemi fjölmiðla.  Unglingur í Kópavogi má vart taka upp kúbein á almannafæri án þess að komin sé stríðsfyrirsögn um hugsanlegt innbrot.   Við búum hvorki í betra né verra þjóðfélagi en áður, hvað þetta varðar.  Nema hvað,  spíttneysla hefur stóraukist í kjölfar lengri opnunartíma skemmtistaða, þökk sé Ingibjörgu Sólrúnu og R listanum, bestu vinum dópsalanna. 

Varðandi klámráðstefnu, er af og frá að hingað komi siðspillt svín úr bæli spillingar. Þrátt fyrir að hér í landi voru hreinu, sé búsett þjóð hórunnar, sú sem leggst undir hvern sem er, hvort sem heitir USA eða ESB.  Hingað til hafa nærbuxur þjóðarinnar fengið að fjúka með ljóshraða, eftir hentugleikum stórþjóða. Við ættum nú samt ekki annað eftir en að glata síðustu leifunum af meyjarhaftinu i í klofið á einhverjum B-mynda klámframleiðeindum.  SVEI SVEI !!!....(nema ég fái aðalhlutverk).....

NL (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband