Geirabakarí

Fór á skólastjórafund á Skaganum í morgun, bara mjög góðann takk fyrir.

Á bakarleiðinni kom ég við í besta bakaríi landsins, sem borgneski Siglfirðingurinn Sigurgeir, eða Geiri Ella Gústa rekur þar við hliðina á Bónus.

Þeir sem þekkja mig vita að ég er "harðkringlusjúklingur" og ég kem alltaf við hjá Geira að kaupa kringlurnar hans, sem fara næst Krútt-kringlunum frá Blönduósi sem ég sakna gífurlega.

Í dag var verið að koma með nýbakaða ástarpunga og ég skellti mér á einn með "coffee to go".   Borðaði hann eins hægt og ég gat!

Er orðinn eins og í myndaflokknum, verð alltaf svangur þegar ég kem í Borgarnes!


Hvert fór Ögmundur?

Í janúar barðist Ögmundur á Austurvelli og hafði hátt.

Svo fékk hann embætti, án vafa það óvinsælasta í ríkisstjórn, heilbrigðisráðuneytið er erfitt ráðuneyti að stýra.

Hann sótti vinnustaðafundi og lofaði samráði.

Ég tók svo eftir því að hann mætti ekki á vinnustaðafundinn á Landsspítalanum til að lýsa aðgerðunum sem þar þarf að grípa til.   Svo sýnist manni stefna í lokun St. Jósefsspítala þrátt fyrir allt, og satt að segja sýnist mér Ögmundur lítið hafa sést þar.

Einn ágætur maður sagði mér það að það yrði erfitt fyrir Ögmund að vera ráðherra, hann væri ákvarðanafælinn og ætti mjög erfitt með að taka ákvarðanir sem væru óvinsælar.  Ég taldi það nú ekki líklegt miðað við framgöngu hans í samfélaginu undanfarin ár.

En nú ætla ég að trúa því að háttvirtur heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, ráði illa við það verkefni sem hann fékk í hendur og ætli sér að vinna sem mest "undir borði" og færa undirmönnum sínum þann kaleik að útskýra nauðsynlegan niðurskurð.

Ekkert veit ég lítilmannlegra hjá stjórnanda en það!


mbl.is St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræði?

Veit svei mér ekki.

Það skiptir engu máli úr þessu, tilraunin Borgarahreyfing er hríðfallin og gerir ekkert nema að draga úr vilja hins almenna borgara að stofna nýjar stjórnmálahreyfingar. 

Að mínu mati alversta tilraun til slíks í sögunni og enn ein ástæða til að endurskoða lýðræðisreglur samfélagsins okkar.  Það voru örfáir að kjósa einstaklingana, en þúsundir kusu Borgarahreyfinguna. Nú sitja upp einstaklingar. 

Í skjóli hvers?


mbl.is Klofningur í Borgarahreyfingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þögnin lifi

Vona að þeir sem hingað koma til að lesa skoðanir mínar móðgist ekki þó ég skrifi ekki um ICESAVE.

Vill ekki trúa því að sú umræða teppi þingið næstu mánuði.  Það eina sem mun þá gerast er að Norröna fer aukaferðir með Íslendinga í október.

Ekki rætt um Icesave hér....


mbl.is Óska eftir trúnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir

Satt að segja ætlaði ég ekki að ræða mjög mikið um pólitík eða slíkt á blogginu mínu, en sýnist ég ekki ná því.  Til þess er einfaldlega svo margt í gangi...

Ég hef svosem lýst því áður að ég tel okkar útgáfu af stjórnun og lýðræði þurfa að fara í gríðarlega naflaskoðun.  Ég talaði held ég töluvert mikið um mikilvægi þess að endurskoða stjórnarskrána og það hvernig við veljum okkur stjórnendur og hvaða völd við færum þeim.

Ég vonaði að Stjórnlagaþing myndi taka fyrstu skrefin og hlustaði eftir því í kosningabaráttunni hversu mikla áherslu flokkarnir lögðu á það.  Í dag er allt slíkt kaffært í fréttum af endurreisn banka.

Fyrir mig, sem er í viðskiptum við traustan sparisjóð úti á landi, er ekkert að frétta.  Ekki neitt.  Ég hef nú lengi haldið að það hafi verið töluverð mistök að bjarga öllum einkabönkunum og held að það eigi eftir að koma í ljós í framhaldinu að áherslan hefði átt að liggja annars staðar þar.

En vanda heimilanna verður ekki litið framhjá.  Þar er ægilegt ástand á mörgum bæjum og morgunljóst, algerlega, að ef ekki verður gripið til aðgerða á næstu vikum er stefna fólks á Austurvöll.

Því miður er pólitíkin á Íslandi ekki búin að átta sig á því að krafa fólksins er að fá athygli og umræðurétt þegar kemur að aðgerðum.  Það er ekki lengur talið nóg að kjósa bara nýja 63 fulltrúa sem svo loka sig af í fallegu húsi við Austurvöll og karpa í margar vikur án þess að taka ákvarðanir.

Því miður held ég líka að fæstir þingmanna átti sig á vandanum, sennilega eru þeir ekki að finna hann á eigin skinni, eða ráða við hann.  Slíkt veldur vanda.

Það þarf að blása til þjóðarumræðu um það hvort núverandi stjórnkerfi virkar í því ástandi sem við eigum við að eiga þessa dagana.  Ég hef verulegar efasemdir um það og tel Stjórnlagaþing vera nauðsynlegt skref til að skoða það hvort tími  er kominn á breytingar á lýðræðiskerfinu okkar.

En heimilin í landinu eru að brenna upp. Það verður að stoppa, en á sama tíma og við förum í naflaskoðun sem þjóð, því miður virkar þingið ekki tilbúið í slíka skoðun...


mbl.is Segja heimilin ekki geta meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá stráknum!

Sá á netinu að Emil spilaði 85 mínútur í kvöld og það er vel.  Öðlingsdrengur hann Emil, jarðbundinn og ljúfur og mikið óskaplega vona ég að hann fái almennilegt tækifæri til að sparka atvinnumannsferlinum af krafti í gang.

Auðvitað er Barnsley ekki risinn í Championship-deildinni en Emil þarf að fá að spila mikið í vetur, hann er langbesti örvfætti kantmaður Íslands og sem slíkur þarf hann að fá að spila.

Heiðar skipti líka um lið og nú verða Emil, Eiður og Heiðar í lykilhlutverkum í vetur.  Er sannfærður um að landsliðið okkar mun græða á því og verða öflugt í vorleikjunum 2010.


mbl.is Fyrsti sigurinn hjá Emil og félögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skyldi vera í gangi?

Einhvern veginn finnst manni slæmt þegar maður er hættur að kippa sér upp við fréttir af innbrotum, allavega meðan að enginn slasast.

Mikið óskaplega sem ég vona að menn átti sig á þörfinni fyrir verulega aukinni löggæslu, með áherslu á hverfagæslu og rannsóknadeild auðgunarbrota.  Því miður finnst mér of lítið stundum vera gert úr þeirri árás á heimilislíf fjölskyldna, og í þessu tilviki, skóla sem slík innbrot eru.

En auðvitað kemur þetta líka til út af ástandinu í samfélaginu okkar þar sem virðing fyrir eignum og fólki fer stöðugt minnkandi.  

 

Gætum upp á hvert annað, það þarf alls staðar og alltaf, ekki síst í niðursveiflu.


mbl.is Innbrot í framhaldsskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Er ég sá eini sem er að missa trúna á pólitíkinni?

Finnst stöðugt minna fara fyrir því að þingmenn átti sig á því að þeir eru fulltrúar þjóðarinnar, en ekki bara flokkanna sinna.

IceSave-deilan er kjörið tækifæri til að sýna að þjóðin eigi á þingi hæfa fulltrúa sem standa saman gegn ógninni sem tap okkar í fjármálastyrjöldinni hefur nú vakið.

Ekki fyrirsagnasláttur forsvarsmanna flokkanna sem virðast alveg tilbúnir í að eyða tíma og peningum í kosningar enn á ný....

 

Eða er þetta bara vitleysa í mér???


mbl.is Engin niðurstaða um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af mér og mínum

Sælt veri fólkið.

Hef lítið bloggað að undanförnu, búinn að vera með fullt hús af gestum og aðkallandi fjölskyldumál í bland, svo maður hefur lítið komist til að skrifa.

Ekki það að umræðuefnin séu ekki nægileg, sat orðlaus hér fyrir tveimur kvöldum og gluggaði í "Glærushow from hell" þar sem maður sá þjófnaði upp á milljónir, en reyndar löglega þjófnaði skilst mér!

Svo sitjum við enn uppi með umræðu um IceSave og afleiðingar skelfilegrar siðblindu yfirmanna bankanna okkar gömlu.  Pólitíkusarnir keppast um að rífast en þó sýnist manni á allra síðustu dögum þeir vera að átta sig á að vonleysið sem fylgir slíkum rifrildum er að reka fullt af fólki úr landinu.

Svo væntanlega verður styttra í pistilinn minn næsta, maður verður bara stöðugt að vanda sig meira til að vera ekki dónalegur og taka þar með þátt í sundrunguninni, sem mun fyrst allra steypa okkur sem þjóð í glötun!


Glæsilegt framtak!

Frænkur mínar náttúrulega ekki mörgum líkar.

Ekki oft sem maður væri til í að vera töluvert eldri en maður er, en held að það sé megastuð á Ásnum þarna.

Góða skemmtun siglfirskir hippar sem aðrir!


mbl.is Hippaball á Ketilási á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband