Stærð sigursins kemur á óvart.

Dagur fór bara létt með þetta!

Árni Páll hlýtur að vera eilítið svekktur með atkvæðamuninn, því hann er mikill.  Dagur B. Eggertsson hefur fengið skjótan frama frá því að hann kom inn sem óháður í R-listann á sínum tíma og í það nú að vera orðinn varamaður í stærsta stjórnmálaflokki landsins nú um stundir.

Þetta embætti varð sjálfseyðing þess sem því gegndi síðast og nú er að sjá hvað verður um Dag, eða kannski embættið, á næstu misserum.

Dagur er vel máli farinn, fínn ræðumaður og ég tók sérstaklega eftir brúarsmíði hans við landsbyggðina.  Ég hlakka til að sjá í hverju hún felst, mér finnst það klárlega veikja forystu Samfylkingarinnar að tveir valdamestu einstaklingar flokksins koma alltaf úr Reykjavíkurkjördæmunum.

Á næstu misserum verður örugglega tilhneigingin mikil að horfa á vandann í höfuðborginni okkar á undan öðrum vanda og þar verða stjórnmálamenn að vara sig og gæta jafnræðis.  Til að okkar góða höfuðborg braggist þarf öfluga landsbyggð.

Og öfugt!!!


mbl.is Tengir ríki og sveitastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að skoða!

Lífeyrissjóðirnir hafa að mestu sloppið við umfjöllun hingað til.

En það gengur auðvitað alls ekki lengur, því þeir eru án vafa nokkrir sekir um mikið bruðl, sukk og í raun svínarí á kostnað umbjóðenda sinna.  Menn með eigin hagsmuni í fyrirrúmi hafa fengið ákveðinn hluta launa okkar allra og leikið sér með þá.  Fengið rífleg laun fyrir og fríðindi, en svo tapað peningunum án þess að þurfa nokkuð að svara fyrir.

Á íslensku er sumt af þessu hægt að skilgreina sem rán.  Séreignasparnaðurinn er annað, en lífeyrissjóðir með skylduaðild þurfa að þekkja siðferðilegar skyldur sínar.

Afi minn var sjómaður og borgaði snemma í lífeyrissjóð.  Fyrir nokkrum árum fór ég í það að skoða með honum hvað varð um þær greiðslur.  Allir þessir sjóðir voru farnir á hausinn og því var það "glatað fé".  Svipað var uppá teningnum hjá Lífeyrissjóði bænda.  "Lítil raunávöxtun og tap" á sjóðnum við upphaf þýddi það að hann fær afar lítið út úr þeim sjóð.  Síðast þegar ég vissi var það 4000 krónur á mánuði!

Nú er svo komið að flestir lífeyrissjóðir hafa tapað fé, sumir hefur maður heyrt að sé undir hamrinum.  Ég treysti því að sérstakur saksóknari fari vel í gegnum lífeyrissjóðina, því ef að hægt er að skammast sín fyrir eitthvað er það að tapa peningum sem fólk er skyldað til að leggja til hliðar.

Mig munar um þá upphæð sem dregin er af mér í lífeyrissjóð og ég heimta það að þegar kemur að því að ég þurfi að taka lífeyri sé hann óskertur.

Fyrir utan að það er rán, er það mannréttindabrot að brjóta slíkan samning á fólki!!!


mbl.is Lífeyrisréttindi skerðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svakalegt!

25% fækkun starfa er auðvitað hrikaleg tala, þó hún kannski komi manni lítið á óvart. 

Yfirbygging bankanna var auðvitað í besta falli kjánaleg, í versta falli plott til að breiða yfir sýndarveruleika botnlausrar velgengni.

Ég borgaði um stund stéttarfélagsgjald hjá bankamönnum, samtals unnið um fimmtán mánuði ævi minnar í banka og þeir sem starfa þar eiga mína samúð að sjálfsögðu.

Fæstir þessara einstaklinga eiga það skilið að hafa verið rændir væntingum sínum um framtíð í lífi og starfi.

Enn einn smánarbletturinn hjá útrásarræningjunum fjörutíu...


mbl.is 1.300 bankamönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harður vetur!

Finnst veturinn þetta árið vera eins og þeir voru í "gamla daga".

Töluverður snjór, mikil ófærð og hálka oft á tíðum en minna um rok og rigningar.  Nóttin á Hellissandi var alvöru vetrarnótt, skítakuldi, snjókoma og skafrenningur.  Fór að sækja unglinginn eftir miðnættið og fékk aðeins að skaflast á slyddujeppanum mínum.

Mér fannst það skemmtilegt!

Í dag er svo tekið við rok og rigning, sem mér finnst leiðinlegast allra veðra og ég vona bara að sem fæstir séu á ferli á meðan veðrið gengur yfir.  Ég allavega verð rólegur.

Reyndar orðinn hundslappur, nánast veikur.  En það þýðir ekkert, stór dagur á Englandi í dag þegar að mínir menn sýna vonandi betri hliðina og vinna United á OT.

Er víst á leið í símaviðtal á útvarpsstöð í dag til að ræða málstaðinn, verð að standa mig fyrir mitt lið þar.

Svo á að kíkja á herrakvöld Víkings í Klifi í kvöld ef heilsan leyfir.  En ég verð ekki með í firmakeppninni í dag, það er á hreinu...


mbl.is Björgunarsveitir að störfum í vonskuveðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klárlega heimakjördæmi flokksins!

Og eina mögulega vígi hans.

Guðjón Arnar er auðvitað Frjálslyndi flokkurinn og af þeim misjafna hóp sem hann hafa fyllt í gegnum tíðina ber Sigurjón Þórðarson af!  Gæti alveg orðið til þess að flokkurinn lifi af í næstu kosningum þó það sé fullkomlega óvíst.

En Magnús Þór nafni minn hlýtur að vera afar svekktur.  Hans málflutningur hefur verið mikill í gegnum tíðina og oftar en ekki hefur hann sveiflað stórum sverðum í ýmsar áttir.

Það er ljóst að málflutningur hans á ekki mikinn stuðning og ég viðurkenni alveg að ég gleðst yfir því!


mbl.is Sigurjón náði 2. sætinu hjá Frjálslyndum í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða fyrirtækjum verður bjargað?

Hekla var yfirtekin síðast og ríkið rekur þar bílasölu í samkeppni.

Nú hefur ÍAV verið skilað aftur til ríkisins, einungis sex árum eftir að það, eitt óskabarnanna, var sett í einkafyrirtækjaferli.

Eftir hlýtur að standa spurningin hvaða fyrirtæki verða tekin í vörslu bankanna og hver gerð upp og þeim lokað.  Vildi ekki endilega vera í sporum þeirra sem þurfa að taka þær ákvarðanir og mikið óskaplega hlýtur að vera erfitt að finna mann ótengdan þessum fyrirtækjum til að taka af skarið.

Auðvitað er viðbúið að svona ástand vari um einhvern tíma en það er ekki leiðin út úr vandanum til langs tíma að sjá ríkið eiga öll stöndugustu fyrirtæki landsins.


mbl.is ÍAV verður yfirtekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Stjáni!

Held að þetta sé þriðja prófkjörið sem kratahöfðinginn frá höfuðborg síldarinnar vinnur fyrir norðan.

Auðvitað er ég hlutdrægur vegna uppruna hans og persónulegra kynna, en ég er sannfærður um það Kristján L. Möller á óunnin ýmis góð verk á Alþingi og er verður þess að sitja í einu sætanna sextíuogþriggja að kjördegi loknum.

Svo gæti orðið fróðlegt að sjá Sigmund Erni í nýju hlutverki.


mbl.is Kristján Möller efstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð skref í rétta átt

Ánægður að heyra það að skapa á störf, þó ég sé ekki endilega algerlega sammála öllum framkvæmdum.

Er t.d. alveg sammála Pétri Blöndal að verulega þarf að skoða það að tónlistarhúsið verði ekki minnisvarði um ofeyðslu!  Það hús þarf að tóna verulega niður í flottheitum og algerlega út í hött, Hróa Hött meira að segja, að ríkið sé að fara taka þátt í því að reisa hótel.

Ef ég væri að reka hótel í miðborg Reykjavíkur væri ég alveg geggjaður!

Svo ber ég auðvitað mikla virðingu fyrir því að verið er að byggja snjóflóðavarnargarða, en sakna þess að sjá ekki aukið lagt í vegagerð, t.d. á Vestfjörðum.  Vegakerfi Vestfjarða er að stórum hluta þjóðarinnar til skammar og þarf að laga.

En gott að sjá að við höfum efni á að ráða fólk í vinnu.  Það er eina lausnin út úr vandanum!!!


mbl.is Ætla að skapa 4000 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bundin eða hnýtt??

Allt kosningabandalag þarf að byggja á málefnum!

Samfylkingin verður að passa sig á því að margir þar innan eru ekki að skilgreina sig sem vinstri menn, heldur félagshyggjufólk fyrst og fremst.

Sé ekki það að sá hópur hoppi glaður á allt það sem VG hafa verið að básúna í vetur.....


mbl.is Samfylkingin gangi bundin til kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átti þetta ekki að vera sigur þingræðisins?

Í staðinn hefur maður lítið séð nema hnoð og röfl.  Endalausa fundi um "óánægju með frammistöðu" ríkisstjórnar, en þó vilja menn stíga dansinn.

Framsóknarflokkurinn er að tapa fylgi á þessum stöðugu fundahöldum um málefnasamning tveggja annarra flokka og hagar sér ekki einu sinni í áttina að því sem flokkar á Norðurlöndum gera í svipaðri stöðu.

Það sem er auðvitað komið í ljós að minnihlutastjórn virkar ekki á Íslandi og lítið merkilegt í þeirri frétt.  Það eru of margir uppteknir af því að fá völd, en hugsa minna um hag almennra borgara.  Ágætur Framsóknarmaður sagði á fundi hér í bæ að flokkurinn ætti að stefna að aðkomu í vinstri stjórn.

Það þarf að koma fram á næstu vikum hvað Sigmundur ætlar sér með flokkinn.  Endalaust daður í aðra röndina og kvart í hina minnir okkur bara á gamla umræðu um síbreytilega stefnu Framsóknarflokksins og er ekki líklegt til árangurs í þeirri viðleitni að benda á hina "Nýju Framsókn"...


mbl.is Fundað um stjórnarsamstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband