Hvalafullur fundur?
5.2.2009 | 12:23
Vonandi ekki.
Alveg ljóst að við eigum að veiða hval óhrædd, ætla ekki að segja hvað ég er glaður að fá súrt rengi á þorranum eða hversu góður ég er orðinn í að grilla hrefnu! En. Geðþóttaákvarðanir í pirringi yfir því að kveðja ráðherrastól eru ekki til að auka veg þessara veiða.
Málið er einfalt. Ef það er vissa fyrir mörkuðum eigum við að veiða hval, en við eigum að fara í ímyndarumræðu um leið. Við auðvitað fáum ekki eyru allra til að hlusta og viðbúið að einhverjir ákveði að fara ekki í hvalaskoðunarferðir, en við eigum að kynna okkar málstað og hafa ferðamannaiðnaðinn með í því.
Ekki bara tala fjálglega um íslenska siði og náttúru en ýta hvalveiðum út í horn eins og skítugu börnunum hennar Evu.
Öll mál á nefnilega að vinna í sameiningu og á sáttasviðinu. Ekki búa til rifrildi fyrir okkar litlu þjóð.
En gaman væri að vera á þessum fundi á Akranesi í kvöld, því margir stórir leikmenn í þessu máli munu verða þar.
![]() |
Steingrímur J. mætir á fund um hvalveiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Erfiðleikar lítillar þjóðar...
4.2.2009 | 08:51
...verða mestir þegar þegnar hennar eru flokkaðir í fylkingar með og á móti.
Þess vegna veit ég ekki alveg hvað á að segja við ESB umræðunni og einhverjum "bestu lausnum". Er enn á því að við munum eiga mjög erfitt með að ná friði í samfélaginu án utanaðkomandi aðstoðar og veit satt að segja alls ekki hvort ESB er sá aðili.
Ég trúi frekar á frændþjóðir okkar í því hlutverki.
Í fréttum gærdagsins kom í ljós að ríkisstjórnarflokkarnir eru ekki sammála um álver á Bakka. Sennilega er sjávarútvegsráðherrann að fara gegn meirihluta Alþingis og tveimur þriðju hlutum þjóðarinnar og í Kastljósi sá maður tvo "vonarprinsa" sinna stjórnmálaflokka rífast eins og hundar og kettir um skattamál.
Er í alvörunni ekki kominn tími á að hugsa hlutina uppá nýtt. Er framtíðin okkar bundin þessu sama argaþrasi sem mun valda sárindum um ókomna tíð? Halda menn að gamla vinnulagið í stjórnmálunum virki ennþá, í nýjum heimi?
Það held ég að sé fullkomlega kolrangt!
![]() |
Besta lausnin er aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rýrt innihald
2.2.2009 | 20:32
Pistill Jóhönnu í Kastljósi í kvöld og fréttirnar áður sýndu bara fram á þá staðreynd að næstu þrjá mánuðina munum við að stofninum til halda áfram að heyra það sama og áður.
"Við erum að vinna, við þurfum svigrúm og fólk þarf bara að bíða rólegt og treysta því að þetta skilar einhverju að lokum, væntanlega innan tveggja mánuða".
En Seðlabankanum á að breyta, besta mál. Hins vegar vona ég að leið Steingríms J. verði farin, þ.e. það verði farið að lögum um réttindi ríkisstarfsmanna. Mér finnst allavega sérstakt ef að fyrstu aðgerðir ríkisstjórnar sem kennir sig við jöfnuð vera að biðja menn um að þiggja ekki umsaminn rétt sinn.
Hvað ætli Ögmundur segi um það, getur formaður Ríkisstarfsmanna sætt sig við slík vinnubrögð.
Og enn heyrist ekkert, ekkert um einkahlutafélög og þá augljósu staðreynd að um 85% efnamestu einstaklinga landsins greiða ekki neinn skatt.
Ég ætla ekkert að gagnrýna það að lagður verði á þrepaskiptur tekjuskattur, sem ég reyndar tel vera vinnuletjandi, eða það að hugað verði betur að þeim efnaminnstu.
Ég ætla hins vegar að vera skeptískur á það að þær byrðar verði eingöngu settar á ákveðinn hóp fólks sem er í flestum tilvikum nú þegar að greiða flestu krónurnar í okkar sameiginlega sjóð og hafa ekki stungið krónu undan, eða falið peningana sína í hlutafélagahnút.
Ég veit ekki með hið frelsandi ljós sem margir virtust sjá vera að kvikna, satt að segja var þetta haltrandi tilhugalíf og afurðin er ennþá óljós.
Nema það að Davíð kveður Seðlabankann og vonandi veldur það einhverri hugarró. Ég held svo reyndar að það þurfi miklu meira til að peningamálastefnan lagist, fannst sannleikur Gunnars Tómassonar í Silfri Egils um helgina ákaflega líklegur og því ljóst að það að skipta út þessum einstaklingum muni ekki valda straumhvörf í peningaumhverfinu.
Það þarf svo miklu meira að koma til!!!
![]() |
Seðlabankastjórar víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tímabært
2.2.2009 | 11:26
Mér finnst mikill drungi liggja yfir höfuðborginni þegar ég kem þangað.
Nú er ég búinn að heyra af nokkrum félögum mínum sem hafa misst vinnu og eru að leita að annarri, enn öðrum sem hafa mátt taka á sig launalækkun og sífellt fleiri sögur af fólki í fjárhagslegri neyð.
Ég veit ekki hvernig ég hefði það af að fá ekki vinnu. Þetta er nýr raunveruleiki á Íslandi og í fyrsta sinn í langan tíma sem raunverulegt atvinnuleysi er í gangi, þ.e. hundruðir eða þúsundir fólks sem hefur áhuga á að fara að vinna einfaldlega fær ekki vinnu.
Og enn á ný er það Rauði Krossinn sem bregst fyrstur við. Gott hjá þeim.
Ég hef sagt áður og segi enn, við þurfum að standa saman sem samfélag í þeim þrengingum sem eru að byrja ganga yfir okkur. Við þurfum að eyða óvild og sundrung eins mikið og mögulegt er og standa þétt að baki hvers annars.
Þess litla þjóð þarf alla sína einstaklinga!
![]() |
Miðstöð fyrir fólk í erfiðleikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verður ekki lengi atvinnulaus
31.1.2009 | 14:55
Gott hjá þér nafni.
Kom mér nú eiginlega ekki á óvart, þessi ólgusjór sem nú geysar mun örugglega hrinda fleirum frá stjórnmálum en hinum góða dreng, Magnús Stefánssyni, Snæfellsbæingi með meiru.
Það er að verða ljóst að það verður nýr hópur i þingliði Framsóknarflokksins að nær öllu leyti og ég satt að segja hlakka til að sjá hvaða valkosti þetta fólk sem hefur týnst í flokkinn að undanförnu mun bera fram til að eignast einhver atkvæði og völd.
En 14 ár í þessu ströggli er auðvitað nóg og ég veit að Maggi verður ekki lengi að finna vinnu þar sem mannkostir hans fá nú að njóta sín án einhvers hreytings frá fólki.
En það er tvennt sem mér finnst neikvætt við brotthvarf hans. Hann er held ég maður friðarins í vinnunni sinni og það held ég að þurfi að vera einn af kostum íslensks þingmanns á næstu misserum. Og svo er ljóst að þingmenn Snæfellsness eru ekki fjölmargir og gaman verður að sjá hvort að þeir flokkar sem bjóða fram telja þetta svæði okkar hér mikilvægt eða ekki.
Sjáum til.
En gangi þér vel nafni, væri nú t.d. fínt hjá þér að leggjast í enska boltann á næstu vikum og sjá ljósið sem kemur svo sterkrautt úr Bítlaborginni. Hef aldrei skilið músíkmenn sem styðja ekki lið frá Liverpool!!!
![]() |
Magnús Stefánsson hættir í stjórnmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn frestast
30.1.2009 | 16:10
Framsóknarflokkurinn auðvitað að sýna hver það er sem ræður í þessu samstarfi.
Gaman væri nú að vita hvernig félagsfundur Samfylkingarinnar í Reykjavík hefði tekið því fyrir rúmlega viku. Segi enn og aftur að það þarf algerlega að liggja klárt frá A-Ö hvernig næstu 90 dagar verða.
Annars á ekki að leyfa þetta! Lýðræðið í landinu er aðhlátursefni út um allan heim, hvort sem verið er að tala núna um starfsráðherra sem að taka stefnumarkandi ákvarðanir eða samkomulag um ríkisstjórn sem flokkur með um 10% fylgi á landsvísu stjórnar.
Svei mér þá, svei mér þá!
Er ekki eina vitið að búa til fjögurra ráðuneyta starfsstjórn, forsætis-, utanríkis-, viðskipta- og fjármálaráðherra. Önnur ráðuneyti geta verið undir stjórn ráðuneytisstjóra. Fínt bara að fá Jóhönnu í forsæti, sem þann stjórnmálamann sem mestu trausti nýtur en hinir yrðu utanþingsmenn.
Ég hef enga trú á því sem er í gangi þessa dagana...
![]() |
Ný ríkisstjórn á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svona á að gera þetta.
30.1.2009 | 08:39
Erdogan á mitt hrós skilið.
Skil ekki hvað Simon Perez var að fara í sinni ræðu og hreint óþolandi að sjá að virtur blaðamaður eins og þessi stjórnandi er nú talinn vildi stöðva tyrkneska forsætisráðherrann til að hleypa fólki í matsalinn!!!
Mér fannst sérstaklega flott hjá honum að benda á sjötta boðorðið, þú skalt ekki mann deyða og afar gott er að sjá að Tyrkir, sem nú eru aðilar að Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna ætli ekki að hlusta á sögufalsanir og yfirhylmingu ráðandi afla í Landinu helga.
Framkoma Ísraelsmanna gegn óbreyttum borgurum á Gaza er í anda þess versta sem maður hefur séð í slíkum átökum og ég tel alþjóðasamfélagið verða að bregðast við, því staðreyndin er einfaldlega sú að ef ekkert er gert vegna Gaza hljóta önnur ríki að reikna með að slík hegðun sé liðin. Hegðuninni gegn almennum borgurum þarna hefur verið lýst sem sjálfsvörn!!!
Myndirnar sem maður hefur séð eiga ekkert skylt með sjálfsvörn!
Vona innilega að Tyrkir haldi sínu striki og næsta skref þeirra verði að láta Hamas líka heyra það, því að hegðun stríðsarms þeirra samtaka átti vissulega upptökin að deilunni, þó að framferðið sem fylgdi hafi verið viðbjóðslegt. Hamas þarf að átta sig á því líka að alþjóðasamfélagið þolir ekki tilhæfulausar árásir á almenna borgara.
Ég held að eina ráðið sé að S.Þ. verði sendar með friðargæslulið þarna inn, tilbúið að berja niður ofbeldisarm Hamas og opna landamærin fyrir venjulegu fólki.
Hver veit nema að Tyrkir taki forystuna í því máli....
![]() |
Erdogan strunsaði út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á að fara af stað með þessa stjórn???
29.1.2009 | 21:48
Veit ekki.
Finnst þetta í hæsta máti sérkennilegt allt. Nú eru skyndilega Framsóknarmenn að sýna það sem við gárum sennilega öll sagt okkur. Þetta er ríkisstjórn á þeirra forsendum. Auðmjúkt eða???
Held satt að segja að við eigum eftir að sjá mikið bras og þras á næstu dögum og satt að segja finnst mér hreint alls ekki sjálfgefið að svona eigi að halda á málum næstu mánuðina.
Kosningabaráttan er byrjuð og mér sýnist stjórnmálamenn hugsa meira um það heldur en að vinna verk fyrir þjóðina sína!!!!!
![]() |
Ekki óskaríkisstjórn Sigmundar Davíðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á að vera sjálfgefið
29.1.2009 | 13:44
Hef aldrei skilið það hvernig á því getur staðið að forsvarsmenn stéttarfélaga sitji á þingi og taki tvöföld laun. Alveg sama hvort um Ögmund eða annan er að ræða.
Það er eitt að vera í stjórn og fá laun fyrir að sitja fundi, en um leið og maður er kominn á Alþingi á það að vera full vinna og út í hött að maður gefi sig upp sem formann slíkra samtaka í aukastarfi!
En gott hjá Ögmundi, fyrst þetta var ekki sjálfgefið!
![]() |
Ögmundur dregur sig í hlé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Og svo?
28.1.2009 | 09:30
Satt að segja sýnist mér ekki margt líta út fyrir að þessi tilraun með ríkisstjórnarform muni ganga upp!
Framsóknarmenn og Frjálslyndir eru held ég í lykilhlutverki því Samfylkingin og VG eru komnir í hár saman yfir því hver á að verða í forsvari fyrir næstu ríkisstjórn, þó að formennirnir séu ekki enn farnir að rífast.
Kolbrún og Álfheiður eru greinilega að sjúga mótmælakaramelluna og vilja drífa sig í kosningar.
En satt að segja sýnist manni það sem sleit R-listanum á sínum tíma þegar vera að byrja. Hver á að vera aðal. VG töldu sig eiga möguleika á að ná meiri áhrifum utan þess lista, sem auðvitað var sprunginn því enginn var alvöru stjórnandinn eftir þegar Ingibjörg kvaddi. VG sætti sig ekki við það að Samfylkingin væri í forystu þá og strax er það að koma upp núna.
Þess vegna fannst mér skondið að heyra Árna Þór mæra R-lista samstarfið í gær! Þetta mun auðvitað marka kosningabaráttuna sem er fram undan og Steingrímur J. þarf að sýna það að hann geti verið með flokkinn sinn í samstarfi við flokk eins og Samfylkinguna og Framsókn sem eru miðjuflokkar, Samfylkingin að stórum hluta hægra megin við miðju.
Með allri þeirri virðingu sem er til fyrir VG og vinstri armi Samfylkingarinnar vona ég að menn átti sig á því að næstu mánuði þarf fyrst og síðast að róa öldurnar í samfélaginu okkar og ef að fólk ætlar að standa í rifrildi um stóla, kosningadaga eða völd er best fyrir það að vera ekki saman í ríkisstjórn.
Samfélagið okkar hefur breyst á undanförnum vikum og alltof margir eru sárir og tilbúnir í átök. Slíkt samfélag verður vonandi ekki hið "Nýja Ísland"!
Ef að forsetinn sér á fréttum næstu daga að VG og Samfylkingin eru að fara í hár saman á hann EKKI að samþykkja minnihlutastjórn þeirra, heldur kalla saman utanþingsstjórn sem lægja á öldurnar í samfélaginu. Það er farið að jaðra við hatur milli hópa hér á landi og það vill ég ekki sjá undir nokkrum kringumstæðum!!!
![]() |
Greinir á um kosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)